Á nýjum lista yfir 100 merka jarðminjastaði
Torfajökulseldstöðin þykir einstök. mbl.is/RAX
Torfajökulseldstöðin og Skaftáreldar eru á nýjum lista Alþjóðajarðfræðisambandsins (IUGS) yfir hundrað merka jarðminjastaði í heiminum.
Að því er fram kemur í tilkynningu tilnefndi Náttúrufræðistofnun bæði svæðin og er valið mikill heiður og alþjóðleg viðurkenning á vísindalegu gildi svæðanna. Listinn var kynntur á fundi sambandsins í Loulé í Portúgal dagana 3.–6. nóvember.
Alþjóðajarðfræðisambandið velur jarðminjastaði á listann vegna framúrskarandi vísindalegs gildis þeirra sem einstök dæmi um jarðfræðileg fyrirbæri, ferla og uppgötvanir. Staðirnir eru víðs vegar um heiminn og teljast meðal þeirra mikilvægustu til að skilja þróun jarðar og sögu hennar.
Þekkt náttúruundur á listanum
Þetta er í þriðja sinn sem IUGS tekur saman lista yfir hundrað merka jarðminjastaði. Fyrsti listinn var birtur árið 2022 á 60 ára afmælishátíð sambandsins í Zumaia á Spáni. Annar listinn var birtur árið 2024 á 37. alþjóðlegu jarðfræðiráðstefnunni í Busan í Suður-Kóreu. Á þeim lista voru tveir íslenskir jarðminjastaðir, Vatnajökull og Reykjanes.
Á vef IUGS má skoða heildarlistann yfir jarðminjastaði, hlaða bókunum um staðina niður án endurgjalds eða kaupa prentuð eintök.
Meðal nýrra staða á listanum eru þekkt náttúruundur á borð við fjallið Fuji í Japan, norsku firðina, San Andreas-misgengið í Bandaríkjunum, fjallið Aconcagua í Argentínu og Súkkulaðihæðirnar á Filippseyjum.
Getur styrkt vernd staðanna til framtíðar
Viðurkenning IUGS vekur alþjóðlega athygli á stöðunum og staðfestir að þeir séu meðal þeirra sem hafa mest vísindalegt gildi á heimsvísu. Þessir staðir hafa gegnt lykilhlutverki í þróun jarðfræðinnar sem fræðigreinar. Þar má sjá skýr dæmi um jarðfræðilega ferla og fyrirbæri og þar hafa verið gerðar mikilvægar uppgötvanir um sögu jarðar, segir í tilkynningunni.
Margir hinna hundrað staða á nýja listanum njóta verndar innan þjóðgarða, jarðvanga og friðlýstra svæða. Aðrir gera það ekki eða aðeins að hluta. Viðurkenning IUGS og sú athygli sem henni fylgir geta aukið skilning á gildi staðanna, stuðlað að því að þeir nýtist betur til fræðslu og rannsókna og ekki síst styrkt vernd þeirra til framtíðar.
Robert A. Askew, Kristján Jónasson og Lovísa Ásbjörnsdóttir, jarðfræðingar hjá Náttúrufræðistofnun, unnu að íslensku tilnefningunum ásamt Catherine R. Gallagher, nýdoktor við Jarðvísindastofnun. Nína Aradóttir, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, kynnti Torfajökulseldstöðina og Skaftárelda á viðburðinum í Loulé í Portúgal.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
