HM 2034 spilað árið 2035?
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2034 í Sádi-Arabíu gæti farið fram í janúar og febrúar 2035, að sögn Espen Olsen Langfeldt, íþróttaritstjóra NRK.
„FIFA sagði okkur að vegna hitans og ramadan yrði heimsmeistaramótið að öllum líkindum haldið í janúar og febrúar 2035,“ sagði hann í hlaðvarpinu Baardsen Sport.
FIFA hefur ekki tilkynnt dagsetningar mótsins og því er fyrirhuguð tímasetning enn óstaðfest.
Heimsmeistaramótið í Katar 2022 var það fyrsta sem haldið var utan hefðbundins sumartíma, en það fór fram í nóvember og desember.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗