Andri Lucas á forsíðum enskra blaða eftir helgina - Í hópi þeirra fremstu í Evrópu
Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. nóvember 2026 08:30
Andri Lucas Guðjohnsen. Mynd: DV/KSJ
Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið á kostum með Blackburn Rovers á tímabilinu og er nú með betri skotnýtingu en nokkrar af stærstu stjörnum evrópskrar knattspyrnu.
Hinn 24 ára gamli íslenski landsliðsframherji skoraði fyrra mark Blackburn í óvæntum 2-1 sigri á West Ham í ensku B-deildinni á laugardag.
Andri skallaði þá boltann í netið eftir frábæra fyrirgjöf frá Jayden Fevrier og kom Blackburn á bragðið.
Markið var það tíunda hjá Andra á tímabilinu en athygli vekur að hann hefur aðeins þurft 20 skot til að skora þessi tíu mörk.
Það þýðir að skotnýting hans er heil 50 prósent og samkvæmt The Sun er hún betri en hjá mörgum af bestu framherjum heims.
Raphinha hjá Barcelona er með 42 prósent skotnýtingu, João Pedro hjá Chelsea 31 prósent og Alexander Isak hjá Liverpool 27 prósent.
Þá er Erling Haaland, markamaskína Manchester City, með 26 prósent skotnýtingu, Kylian Mbappé hjá Real Madrid 20 prósent og Harry Kane hjá Bayern München aðeins níu prósent.
Andri hefur því vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína og Tony Mowbray, stjóri Blackburn, hefur meira að segja nefnt að Barcelona gæti sýnt honum áhuga.
Andri er sonur Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrrum landsliðsfyrirliða Íslands, sem gerði garðinn frægan með Chelsea og Barcelona.
Eiður Smári varð meðal annars tvívegis Englandsmeistari með Chelsea og vann Meistaradeild Evrópu með Barcelona.
Nú virðist Andri vera að feta í fótspor föður síns og hefur svo sannarlega stimplað sig inn sem einn skæðasti framherji ensku B-deildarinnar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗