„Nýtt tímabil öfga í veðurfari“

Antonio Guterres.

Antonio Guterres. AFP/Khaled Desouki

Heimurinn stendur frammi fyrir nýjum veruleika þar sem öfgar í veðurfari eru orðnar að reglu, varaði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, við í morgun og hvatti leiðtoga á loftslagsráðstefnunni COP31 í Tyrklandi til að „taka málin alvarlega“.

„Gríðaröflugur El Niño skellur á plánetu sem er þegar ofhituð af völdum loftslagsbreytinga af mannavöldum,“ sagði aðalframkvæmdastjóri SÞ í tilkynningu.

„Við erum gengin inn í nýtt tímabil öfga í veðurfari.“

Maður gengur framhjá lógói loftslagsráðstefnunnar COP31 í Tyrklandi.

Maður gengur framhjá lógói loftslagsráðstefnunnar COP31 í Tyrklandi. AFP/Ozan Kose

Þegar leiðtogar komu saman í Antalya á loftslagsráðstefnu SÞ hvatti Guterres þá til að „taka málin alvarlega með því að draga hraðar úr losun, flýta réttlátum umskiptum frá jarðefnaeldsneyti og útvega það fjármagn og þá vernd sem viðkvæm ríki þurfa á að halda“.

Yfirlýsing hans kom á sama tíma og Alþjóðaveðurfræðistofnun SÞ birti skýrslu sem bendir til þess að árið 2026 hafi áframhald verið á einstaklega háu hitastigi á heimsvísu, bráðnandi ís og hækkandi sjávarborði.

Hvert og eitt síðustu 12 ára hefur verið á meðal 12 heitustu ára frá upphafi mælinga, að sögn stofnunarinnar, og búist er við að þetta ár verði á meðal þeirra heitustu sem sögur fara af.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅