Útilokar að segja af sér
Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur ítrekað verið spurður út í framtíð sína hjá félaginu. Hann útilokaði að hann myndi segja starfi sínu lausu í viðtali eftir 4:4-jafnteflið gegn Aston Villa í gær.
Carrick var spurður út í framtíð sína í viðtali við Sky Sports og svaraði því stutt:
„Það mun ekki gerast,“ sagði hann þegar hann var spurður hvort hann myndi stíga til hliðar.
Þegar spyrillinn spurði hvort búast mætti við viðræðum við stjórnendur félagsins svaraði Carrick undrandi: „Er það?“
Spyrillinn sagðist þá telja eðlilegt að búast við slíkum viðræðum. Carrick spurði á móti: „Myndir þú halda það?“
Þegar spyrillinn spurði hvað honum sjálfum fyndist svaraði Carrick: „Þú ert að segja mér hvað þú heldur.“
Carrick viðurkenndi að liðið hefði ekki unnið nógu marga leiki en sagðist búast við að halda áfram starfinu og vinna að því að bæta gengi liðsins.
"That's not going to happen" 🗣️ Michael Carrick responds to the notion that he could resign as Manchester United head coach 🔴 https://t.co/q1fBKSXL7l
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) November 8, 2026
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗