„Alls ekki svo galið að ferðast ein“
Stefanía Bergmann Magnúsdóttir er hér á Ítalíu. Hún er með það markmið að heimsækja eitt nýtt land á ári. Ljósmynd/Aðsend
Stefanía Bergmann Magnúsdóttir starfar við samfélagsmiðla og markaðstengt efni á Keflavíkurflugvelli. Stefanía bjó í nokkur ár í Barcelona og fær aldrei leið á borginni. Þrátt fyrir það reynir hún líka að heimsækja nýja og spennandi staði.
„Ég hef alltaf haft gaman af ferðalögum og ljósmyndun og finnst fátt skemmtilegra en að hafa spennandi ferðalag fram undan. Fyrir nokkrum árum setti ég mér það markmið að heimsækja að minnsta kosti eitt nýtt land á hverju ári og hef reynt að halda mig við það síðan. Þegar ég er ekki á ferðinni finnst mér gaman að prófa ný áhugamál, baka og verja tíma með vinum og fjölskyldu,“ segir Stefanía.
„Ég held að ferðabakterían hafi kviknað smám saman með árunum. Ég hef alltaf haft gaman af því að upplifa nýja hluti og þegar ég starfaði sem flugfreyja hjá Icelandair fékk ég tækifæri til að ferðast í gegnum vinnuna, sem jók eflaust enn frekar áhugann á ferðalögum,“ segir Stefanía um hvernig ferðabakterían kviknaði.
Þessa mynd tók Stefanía á Ítalíu en hún reynir að heimsækja eitt nýtt land á hverju ári. Ljósmynd/Aðsend
Stefanía segir heiminn bjóða upp á nýjar upplifanir út um allt.
„Mér finnst heillandi hvað heimurinn hefur mikið upp á að bjóða og hversu ólík upplifun getur beðið manns eftir því hvert maður fer. Það skemmir heldur ekki fyrir að eiga kærasta sem elskar að ferðast jafn mikið og ég og er alltaf til í ný ævintýri.“
Hvernig ferðalögum ertu hrifin af?
„Ég er hrifin af alls konar ferðalögum, bæði borgarferðum og ævintýraferðum. Mér finnst skemmtilegast að vera á ferðinni, skoða nýja staði, finna góða veitingastaði og prófa eitthvað sem ég hef ekki gert áður. Það er auðvitað alltaf plús að fara á áfangastaði þar sem sólin skín, en ég er einfaldlega of óþolinmóð til að eyða heilu fríunum á sólbekknum.“
Stefanía býr til skemmtilegt myndefni frá ferðalögum sínum og deilir því á Instagram.
„Þetta hefur eiginlega þróast smám saman með árunum. Mér hefur alltaf fundist gaman að taka myndir, sérstaklega á ferðalögum þegar maður upplifir eitthvað nýtt og sér eitthvað fallegt sem fangar augað. Með tímanum hef ég svo orðið duglegri að deila myndum og myndböndum frá ferðalögunum mínum á samfélagsmiðlum. Eins og er er þetta fyrst og fremst áhugamál hjá mér. Ég starfa nú þegar við samfélagsmiðla og finnst gaman að geta sameinað áhugann á ferðalögum og sköpun í frítímanum. Hver veit nema þetta þróist eitthvað meira með tímanum.“
Bjó í Barcelona
Stefanía flutti til Barcelona árið 2017 þegar hún hóf meistaranám í borginni. Eftir nám flutti hún heim en hugur hennar var þó eftir í Barcelona. Árið 2022 ákvað hún að flytja aftur út og var í eitt og hálft ár í Barcelona og var á meðan í fjarvinnu.
„Mér fannst ótrúlega skemmtilegt að búa erlendis. Það er svo dýrmæt reynsla að kynnast nýju landi og menningu, ekki bara sem ferðamaður heldur með því að búa þar og taka þátt í daglegu lífi. Það er ótrúlega þroskandi að þurfa að fóta sig í nýju umhverfi, kynnast nýju fólki og byggja upp hversdagslíf á nýjum stað.
Ég held að fólk mikli þetta stundum fyrir sér og hugsi að það sé mjög stórt og flókið skref að flytja til útlanda, en oft er þetta minna mál en maður heldur. Auðvitað þarf að skipuleggja ýmislegt, en maður finnur út úr hlutunum jafnóðum. Ég myndi klárlega mæla með því að fólk prófi að búa erlendis að minnsta kosti einu sinni yfir ævina, ef það hefur tök á því. Þetta er reynsla sem maður lærir mikið af og býr að lengi á eftir.“
Það kemur því ekki á óvart að Barcelona er sú borg í Evrópu sem er í mestu uppáhaldi hjá Stefaníu.
„Barcelona er klárlega uppáhaldsborgin mín í Evrópu. Ég bjó þar um tíma og borgin á því sérstakan stað í hjarta mínu. Mér finnst æðislegt hvað hvert hverfi hefur sinn eigin sjarma og það er endalaust af góðum veitingastöðum og skemmtilegum þakbörum þar sem hægt er að fá sér góðan drykk og njóta útsýnisins yfir borgina.
Það er líka alltaf eitthvað um að vera í Barcelona. Maður getur labbað út úr húsi án þess að vera með nein sérstök plön og endað óvænt á götupartíi eða rekist á eitthvað skemmtilegt sem er í gangi. Mér finnst þessi stemning gera borgina svo skemmtilega og það er alltaf hægt að finna eitthvað nýtt að gera, jafnvel þótt maður hafi komið þangað oft áður. Þótt mér finnist yfirleitt skemmtilegast að heimsækja nýja staði þegar ég ferðast, þá er Barcelona ein af fáum borgum sem ég gæti farið aftur og aftur til án þess að fá leið á henni.“
Fékk sjálfstraust í Suður-Afríku
Hvert er eftirminnilegasta ferðalag sem þú hefur farið í?
„Ég á mjög erfitt með að velja eitt eftirminnilegt ferðalag. Það eru nokkrar ferðir sem standa upp úr, eins og sjálfboðastarf í Suður-Afríku, að gista í Sahara eyðimörkinni í Marokkó og ferð til Japans. En ferðin til Suður-Afríku stendur klárlega mest upp úr.
Ég eyddi tveimur mánuðum í Suður-Afríku þar sem ég fór ein í sjálfboðastarf, sem var svolítið stórt skref fyrir mig á þeim tíma. Fyrri mánuðinn vann ég með munaðarlausum börnum nálægt Höfðaborg. Það var mjög gefandi en líka krefjandi og opnaði augu mín fyrir mörgu,“ segir Stefanía.
Hér má sjá Stefaníu í sjálfboðaliðastarfi í Suður-Afríku. Hún vann meðal annars með fílum. Ljósmynd/Aðsend
Eftir sjálfboðaliðastarfið með munaðarlausu börnunum varði hún tíma í athvarfi með dýrum.
„Síðan vann ég í athvarfi fyrir dýr sem hafa verið bjargað, sem var allt önnur upplifun. Þar fékk ég að aðstoða við umönnun dýra eins og til dæmis fíla, tígrisdýra, blettatígra, ljóna, hýena og sebrahesta. Það var ótrúlega magnað að fá að umgangast þessi dýr og taka þátt í daglegri umönnun þeirra. Ég mátti ekki fara út seint á kvöldin þar sem flóðhestar voru þarna í kring og á kvöldin þegar ég var að fara sofa heyrði ég í ljónunum sem voru nokkrum metrum frá því sem ég var að gista. Þetta var alls ekki týpískt ferðalag þar sem maður liggur við sundlaugina og slakar á.
Það sem stendur þó mest upp úr er hvað ferðin gaf mér mikið sjálfstraust. Þetta var í fyrsta sinn sem ég ferðaðist ein svona langt og það var mjög skemmtilegt að prófa það. Ég komst fljótt að því að það er alls ekki svo galið að ferðast ein og maður þarf ekki alltaf að bíða eftir að einhver annar sé til í að fara með manni. Ég held að það hafi líka kveikt enn meiri áhuga hjá mér á að ferðast og prófa hluti sem ég hefði kannski ekki endilega þorað áður.“
Japan kom á óvart
Þegar Stefanía er spurð að því hvaða borg sé í mestu uppáhaldi fyrir utan Evrópu nefnir hún Tókýó í Japan.
„Ég heillaðist algjörlega af borginni og það er svo margt að sjá og gera þar að ég náði alls ekki að upplifa allt sem mig langaði til. Ég væri alveg til í að fara aftur og skoða enn meira af borginni.“
Tókýó er í miklu uppáhaldi hjá Stefaníu og langar hana að fara aftur til borgarinnar. Ljósmynd/Aðsend
Það var auðvelt að ferðast milli staða í Japan en hér má sjá fjölda fólks í lest þar í landi. Ljósmynd/Aðsend
Ferðin til Japan kom Stefaníu á óvart en það hafði verið draumur hjá kærasta hennar að fara og vildi hann endilega fá hana með í ferðalagið.
„Ég var nú ekkert alltof spennt fyrir hugmyndinni til að byrja með, en ákvað að slá til og ég er svo sannarlega fegin að hafa gert það. Ég varð algjörlega heilluð af Japan og landið fór langt fram úr öllum mínum væntingum. Mér kom þó skemmtilega á óvart hversu auðvelt var að ferðast á milli staða, hvað maturinn var góður, hversu hreint var hvert sem maður fór og hvað fólkið var almennilegt og hjálpsamt. Svo er líka margt skemmtilegt og óvenjulegt hægt að upplifa þar. Það er til dæmis hægt að fara á kaffihús þar sem lítil svín ganga um og maður rekst á karaókístaði víða um borgina. Ég hefði aldrei trúað því fyrir ferðina hversu mikið ég myndi heillast af landinu og mig langar klárlega að heimsækja Japan aftur.“
Ekki spennt fyrir að fara til Tenerife aftur
Hefur eitthvað land ollið vonbrigðum?
„Ég held að ég verði að segja Tenerife. Ég fór þangað í fyrsta skipti í fyrra og þó það hafi verið gaman að koma þangað, þá heillaði staðurinn mig ekki nógu mikið til að ég sé spennt fyrir því að fara aftur. En hver veit, kannski dett ég á Tenerife-vagninn einn daginn eins og restin af þjóðinni.“
Hvernig leitar þú að innblæstri fyrir ferðalög?
„Ég fæ mikinn innblástur fyrir ferðalög á Instagram og TikTok. Mér finnst gott að kynna mér áfangastaði fyrir fram og skoða hvað er skemmtilegt og spennandi hægt að gera á þeim stöðum. Ég nota TikTok sem leitarvél þegar ég er að skoða áfangastaði og hvað er hægt að gera frekar en Google og mér finnst líka sniðugt að nota ChatGPT til að fá hugmyndir og tillögur.
Ef ég á að vera alveg hreinskilin sér kærastinn minn yfirleitt um stærstan hluta skipulagningarinnar þegar við ferðumst saman. Ég kem með hugmyndir að stöðum og upplifunum, en hann sér oftast um að púsla ferðinni saman. Við reynum að hafa ákveðin plön en viljum líka skilja eftir svigrúm fyrir eitthvað óvænt, því stundum verða það bestu minningarnar.
Þegar ég vel næsta áfangastað leita ég helst að stöðum sem ég hef ekki heimsótt áður. Mér finnst spennandi að kynnast nýjum stöðum og menningu, þannig að listinn yfir áfangastaði sem mig langar að heimsækja er ansi langur.“
Stefanía notar meðal annars TikTok og gervigreind til aðstoðar þegar hún skipuleggur ferðalög. Þessa mynd tók hún á veitingastað í Japan. Ljósmynd/Aðsend
Ætlar til Brasilíu með kærastanum
Hver dreymir þig um að fara?
„Brasilía er klárlega ofarlega á listanum hjá mér, enda er kærastinn minn þaðan. Okkur hefur lengi langað að fara saman og við stefnum á að láta það verða að veruleika á næsta ári. Mig langar mikið að fá að upplifa landið með honum, sjá staðina sem hann hefur sagt mér frá og kynnast Brasilíu frá öðru sjónarhorni en sem venjulegur ferðamaður.
Ertu búin að skipuleggja næsta ferðalag?
Já, ég er á leiðinni til Gdansk í nóvember í vinkonuferð og hlakka mikið til. Ég hef lítið komið að skipulagningunni, þar sem nokkrar vinkonur mínar sjá um hana. Ég hef aldrei komið til Póllands áður en hef heyrt margt gott um Gdansk, svo það verður spennandi að upplifa borgina með góðum vinkonum,“ segir Stefanía spennt fyrir næstu ferð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/71/1687129.jpg)









