Segjast ekki hafa njósnað um forstjóra Nvidia

Þetta skjáskot sýnir Alice Huang, til hægri, í kvöldverðarboði sem Jensen Huang, í miðjunni, hélt á veitingastað í Taipei á síðasta ári. AFP

Kínversk stjórnvöld vísa á bug ásökunum um að þau hafi njósnað um Jensen Huang, forstjóra bandaríska örflögurisans Nvidia, og segja þau ásakanirnar „tilhæfulausar“.

„Við höfum áður svarað þessu máli. Frásögnin um svokallaðan kínverskan njósnara er algjörlega tilhæfulaus rógur og ófrægingarherferð,“ sagði Guo Jiakun, talsmaður utanríkisráðuneytisins, á hefðbundnum blaðamannafundi, eftir að stjórn Nvidia tilkynnti að hún hefði hafið rannsókn á fréttum fjölmiðla þar sem því er haldið fram að um „aðgerð erlendrar leyniþjónustu“ hafi verið að ræða.

Alice Huang er önnur frá vinstri á þessari mynd. Huang gengur á undan henni í svörtum bol. AFP

Viðurkenndi framhjáhald

Jensen Huang, forstjóri Nvidia, hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til fjörutíu ára með kínverskum njósnara sem ráðinn var af kínversku leyniþjónustunni til þess að afla upplýsinga um Huang og fyrirtæki hans. 

Njósnarinn sem Huang átti í ástarsambandi við heitir Alice Huang og hefur gegnt háttsettri stöðu hjá tæknifyrirtækinu Megaspeed, sem hefur höfuðstöðvar í Singapúr og rekur gagnaver í Asíu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅