Brjálaður og leitar upplýsinga - Keyrt á bílinn hans um helgina

Stephen Warnock, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi sérfræðingur hjá BBC, er allt annað en sáttur eftir að ekið var á bíl hans og ökumaðurinn stakk af.

Warnock greindi frá atvikinu á Instagram þar sem hann birti myndir af skemmdunum á bílnum sínum.

„Ég er alls ekki í góðu skapi. Ég hef ekkert á móti því að fólk geri mistök en þegar einhver keyrir á bílinn þinn á bílastæði og stingur svo af án þess að viðurkenna það, þá verð ég brjálaður,“ sagði Warnock.

Hann kvaðst vera að reyna að komast að því hvar atvikið átti sér stað og vonast til að upptökur úr öryggismyndavélum geti varpað ljósi á málið.

Fjölmargir fylgjendur hans tóku undir reiði hans í athugasemdum.

Einn stuðningsmaður gerði þó góðlátlegt grín að atvikinu og skrifaði að Rafael Benitez, fyrrum stjóri Warnock hjá Liverpool, hefði líklega verið að verki.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅