Eldur kviknaði í sánaklefa
Innlent | mbl | 9.11.2026 | 7:30
Slökkviliðið fór á vettvang. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Eldur kviknaði í frístandandi sánaklefa við hús á Kjalarnesi um hálfsexleytið í gær.
Þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn var klefinn brunninn til kaldra kola og er ekki grunur um sakhæft athæfi, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu sá slökkviliðið á Kjalarnesi um að slökkva í glæðunum. Húsið við sánaklefann var ekki í hættu vegna eldsins.
Ekkert er vitað um eldsupptök.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/54/19/1541959.jpg)