Stal vinningum úr spilakassa
Lögreglan á Hverfisgötu var kölluð til vegna manns sem var að stela vinningum úr spilakassa á bar.
Við afskipti lögreglunnar framvísaði maðurinn skilríkjum annars manns en þó aðeins hluta þeirra því þau höfðu verið klippt í sundur.
Maðurinn var mjög ölvaður og gat ekki gert grein fyrir sér. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.
Fjórir gistu fangaklefa lögreglu þegar dagbókarfærslan var rituð.
Braut reynslulausn: Með fíkniefni og hníf
Ökumaður var stöðvaður af lögreglunni á Hverfisgötu grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökuréttindum. Maðurinn var einnig með mikið magn fíkniefna, peninga og farsíma meðferðis og er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna.
Þá hafði maðurinn ekið gegn rauðu ljósi, var með hníf meðferðis, hafði ekki gefið stefnuljós, var á ótryggðu ökutæki, var að brjóta reynslulausn og var grunaður um brot á lyfjalögum. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Ekið á mannlausa bifreið
Lögreglan sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ fékk tilkynningu um umferðaróhapp þar sem ekið hafði verið á mannlausa bifreið. Meiðslin voru minniháttar við fyrstu skoðun en ein manneskja leitaði á slysadeild vegna óhappsins.
Lögreglan sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti stöðvaði ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann er einnig grunaður um sölu fíkniefna. Hann var látinn laus eftir sýnatöku lögreglu og skýrslutöku á vettvangi.
Lögreglan á Vínlandsleið handtók ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus eftir sýnatöku lögreglunnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

