Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 35 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Fjórir gistu fangageymslur lögreglu.

Eitt umfangsmesta mál næturinnar kom upp þegar lögregla stöðvaði ökumann í miðborginni eða nærliggjandi hverfum. Maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda, en við afskipti lögreglu kom í ljós að hann var með mikið magn fíkniefna, peninga og farsíma í fórum sínum.

Maðurinn er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna en það var þó langt í frá það eina sem lögregla hafði við aksturslag hans og háttsemi að athuga.

Hann hafði einnig ekið gegn rauðu ljósi, ekki gefið stefnumerki og ekið á ótryggðu ökutæki. Þá var hann með hníf í fórum sínum, grunaður um brot á lyfjalögum og talinn hafa brotið gegn skilyrðum reynslulausnar.

Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.

Framvísaði sundurklipptum skilríkjum

Í öðru máli á miðborgarsvæðinu var lögregla kölluð að bar vegna manns sem hafði verið að stela spilakassavinningum.

„Við afskipti lögreglu framvísaði maðurinn skilríki annars manns, þó aðeins hluta þess þar sem það hafði verið klippt í sundur. Maðurinn var mjög ölvaður og gat ekki gert grein fyrir sér,“ segir í skeyti lögreglu þar sem greint er frá því að maðurinn hafi verið handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Saunaklefi brann til kaldra kola

Í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem sinnir Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, var tilkynnt um eld í frístandandi saunaklefa. Þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang var klefinn þegar brunninn til kaldra kola. Ekki er grunur um að eldsupptökin megi rekja til refsiverðrar háttsemi.

Þá var tilkynnt um umferðaróhapp á starfssvæði lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi þar sem ekið hafði verið á mannlausa bifreið. Ein manneskja leitaði á slysadeild en meiðsli voru talin minniháttar við fyrstu skoðun.

Lögregla hafði jafnframt afskipti af nokkrum ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra, sem var stöðvaður í Kópavogi eða Breiðholti, er einnig grunaður um fíkniefnasölu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅