Bayern í vandræðum - Stjarna liðsins með sjúkdóm sem erfitt er að lækna

Jamal Musiala, leikmaður Bayern München, glímir við veikindi sem erfitt er að lækna, að sögn Uli Hoeness, eins af forystumönnum þýska stórliðsins.

Musiala hefur ekki spilað síðan 18. september eftir að hafa meiðst í leik gegn Union Berlin.

Þjóðverjinn féll einnig tvisvar niður á undirbúningstímabilinu og greindi síðar frá því að hann glímdi við flogaköst.

„Við erum í erfiðri stöðu. Hann er með sjúkdóm sem ekki er auðvelt að lækna en hægt er að halda honum niðri með lyfjum,“ sagði Hoeness við Bild.

Hoeness viðurkenndi jafnframt að óvíst væri hvort Musiala næði aftur fyrri styrk.

Musiala hefur aðeins leikið fjóra leiki með Bayern á tímabilinu og er enn óljóst hvenær hann snýr aftur á völlinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅