Trump: „Afar ólíklegt“ að átök haldi áfram

Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP/Alex Wroblewski

Donald Trump Bandaríkjaforseti dregur í efa að átök við Íran muni blossa upp á nýjan leik.

Í viðtali við CNN í gær greindi hann frá því að „afar ólíklegt“ væri að átökin myndu halda áfram.

Í dag ætlar forsetinn að funda með forsætisráðherra Katar, sem hefur verið milligöngumaður í málinu.

Trump hefur á undanförnum vikum hótað að hefja árásir að nýju og bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að átök gætu hafist á ný eftir þingkosningarnar á dögunum.

Forsetinn sagði í viðtali við CNN í gær að „afar ólíklegt“ væri að átökin héldu áfram en varaði við því að ákvörðun hans „ráðist af því hvort þeir undirriti mjög öflugt samkomulag eða ekki“.

„Ég myndi gera það ef nauðsyn krefði, en við gerðum mjög harðar árásir á þá. Ég lét þá finna svo rækilega fyrir því. Þið vitið ekki hversu hart ég lét þá finna fyrir því,“ sagði hann.

Funda í Hvíta húsinu

Trump á að hitta Sheikh Mohammed bin Abdulrahman Al Thani, forsætisráðherra Katar, sem jafnframt er utanríkisráðherra landsins, í Hvíta húsinu í dag.

Fundurinn verður fyrsti fundur Trumps með erlendum leiðtoga frá því að hann beið mikinn ósigur í þingkosningunum þar sem Repúblikanaflokkur hans missti meirihluta sinn á þinginu.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅