Rekinn í annað skiptið á aðeins hálfu ári

Belgíski knattspyrnuþjálfarinn Ed Still hefur verið rekinn frá RAAL La Louviere, aðeins sex mánuðum eftir að honum var sagt upp störfum hjá Watford á Englandi.

Still, sem er 35 ára, tók við belgíska félaginu aðeins 17 dögum eftir brottreksturinn hjá Watford, þar sem hann hafði enst í 83 daga.

Gengi RAAL La Louviere hefur verið afar slakt undir stjórn Still en liðið náði aðeins sjö stigum í tólf leikjum.

Tap gegn Cercle Brugge um helgina, þar sem leikmenn liðsins misnotuðu tvær vítaspyrnur, reyndist síðasti naglinn í kistuna.

Salvatore Curaba, forseti félagsins, staðfesti brottreksturinn í beinni sjónvarpsútsendingu.

„Mér líkar mjög vel við Edward en hagsmunir félagsins verða að ganga framar öllu,“ sagði Curaba.

Still er bróðir Will Still, þjálfara franska félagsins Auxerre.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅