Matthildur María: „Ég gæti fengið mér taco í öll mál“
Matthildur María Rafnsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaþings Arctic Circle og þjálfari í Strong Studio, deilir vikumatseðli þar sem næring og matargleði fara saman. Ljósmynd/Aðsend
Matthildur María Rafnsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaþings Arctic Circle, þjálfar yfir hundrað konur í hverri viku í Strong Studio. Á heimilinu eru hamborgarar vikuleg hefð og eiginmaðurinn sér um grillið. Sjálf leggur hún áherslu á að góður matur sé bæði næringarríkur og tilhlökkunarefni í lok dags.
Hún hefur mikinn áhuga á hreyfingu, vellíðan og næringu og telur jafnvægi lykilatriði í daglegu lífi. Þegar dagskráin er þétt hjálpa góðar venjur henni að hafa eldamennskuna einfalda og ánægjulega. Á mánudögum er gjarnan eldaður tvöfaldur skammtur svo eitthvað gott sé til í ísskápnum síðar í vikunni.
Það er líka pláss fyrir uppáhaldseftirréttinn og ljúffengan kaffibita. Vikumatseðill Matthildar Maríu endurspeglar þessa nálgun: að næra líkamann vel og gefa sér tíma til að njóta matarins með fjölskyldunni.
Mánudagur - Kjúklingasalat
„Kjúklingur er fullkominn mánudagsmatur að mínu mati og við reynum yfirleitt að elda tvöfalt á mánudögum til að eiga eitthvað gott og næringarríkt í ísskápnum í vikunni.“
Þriðjudagur - Taco-veisla
„Ég gæti fengið mér taco í öll mál. Það er einfalt og fljótlegt og tveggja ára dóttir mín elskar það líka! Ég reyni að hafa prótín með í öllum máltíðum og taco er frábær leið til að borða litríkt og fjölbreytt.“
Miðvikudagur - Kjúklingapasta
„Ég er mikið fyrir pasta með góðri sósu, nóg af kjúklingi og smá osti yfir. Kjúklingapasta er frábær leið til að fá góða blöndu af prótíni og kolvetnum sem hjálpa okkur að byggja upp og viðhalda vöðvum, auka orkuna og styðja við endurheimt eftir æfingar.“
Fimmtudagur - Bleikja
„Ég ólst ekki upp við fastan mánudagsfisk og þarf alveg að vera í réttu stuði fyrir fisk. Aðallega af því að ég þarf að borða svo mikið af honum til að verða almennilega södd eftir mikla kennslu og langan vinnudag.
Þess vegna vel ég oft daga þar sem ég er að þjálfa minna. Fimmtudagar verða því oft fyrir valinu en mér finnst best að hafa hann einfaldan og nota sem fæst hráefni. Góður fiskur þarf nefnilega ekki mikið til að njóta sín. Smá hnetur, fetaostur og hunang er fullkomið.“
Föstudagur - Lambakótilettur
„Lambakótilettur eru klárlega í uppáhaldi á mínu heimili. Það er fátt betra en góðar kótilettur af grillinu með góðu meðlæti og sósu.
Bergsteinn, maðurinn minn, er mikill grillari og sér alltaf um þann hluta. Ég kvarta svo sannarlega ekki yfir því að eiga minn eigin grillmeistara!“
Laugardagur - Hamborgari
„Hamborgari einu sinni í viku er eiginlega heilög hefð á mínu heimili. Þeir þurfa nefnilega alls ekki að vera óhollir og geta alveg passað inn í mataræðið. Það fer auðvitað eftir því hvað maður setur á þá!
Ég er sérstaklega hrifin af borgurum með smá hita og miklu bragði. Þessi uppskrift frá mbl.is er algjörlega í mínum anda og laugardagurinn bara orðinn enn betri!“
Sunnudagur - Nautapottréttur
„Við eyðum oft góðum tíma í eldhúsinu á sunnudögum og dóttir okkar elskar að fá að taka þátt. Síðasta sunnudag gerðum við heimagerða deigvasa og núna langar mig í eitthvað hlýtt og notalegt sem fær að malla lengi á eldavélinni.
Mér finnst mikilvægt að sunnudagsmaturinn sé eitthvað sem maður hlakkar til að borða og góður nautapottréttur er akkúrat þannig matur. Notalegur, bragðgóður og fullkominn fyrir rólegan sunnudag með fjölskyldunni.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/6/1690687.jpg)