Fjöldamorðin gleymdust aldrei
Frá fyrstu töktum í sinfóníska ljóðinu Eyju hinna dauðu eftir Sergej Rakhmanínov (1873-1943) má vel gera sér í hugarlund að tónskáldið sé að lýsa öldugangi. Takttegundin, 5/8, er óregluleg og minnir kannski einna helst á það þegar árar snerta vatnsflöt; hér er því bátur að sigla. Þó svo að verkið hafi yfir sér „hægt“ yfirbragð er greinilegt að undir niðri kraumar eitthvað miklu meira. Tónlistin fer veikt af stað en styrkurinn vex jafnt og þétt uns hann nær hápunkti þegar sá sem hóf áratogið í upphafi nálgast eyjuna sem Rakhmanínov er að lýsa. Eftir tímabundna ró (Tranquillo) vex svo styrkurinn aftur og nær öðrum hápunkti áður en verkið fjarar smám saman út í lokin.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/1/1690148.jpg)