Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
Erlent | AFP | 9.11.2026 | 6:31
Lögreglubíll fyrir utan húsnæði þar sem árásarmaðurinn bjó í Ostrowiec Swietorkzyski, norðaustur af Kraká. AFP/Sergei Gapon
Maðurinn sem lögreglan segir hafa skotið sex manns til bana og sært 15 í miðborg Kraká í Póllandi á laugardag er látinn.
„Við tilkynnum að gerandi þessara hörmulegu atburða lést í morgun á sjúkrahúsi,“ sagði lögreglan í færslu á X um 24 ára gamlan Pólverja.
Maðurinn skiptist á skotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn og var hann fluttur á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir byssuskoti. Þar lést hann af sárum sínum.
Auk þeirra sem voru skotnir í miðborginni fundust þrír látnir heima hjá hinum grunaða, eða systir og foreldrar hans.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗