76 ára sápuóperustjarna komin á OnlyFans
Leikkonan Morgan Fairchild á viðburði í september. Fairchild, sem er 76 ára, ætlar að deila myndum og myndskeiðum með aðdáendum sínum á OnlyFans. AFP/Rick Kern
Bandaríska leikkonan Morgan Fairchild, sem margir þekkja úr sjónvarpsþáttunum Friends sem móður Chandlers Bing og Dallas, ætlar að opna síðu á OnlyFans. Þar vill hún gefa aðdáendum sínum færi á að kynnast annarri hlið á sér.
Í samtali við People segist Fairchild ætla að birta nýjar myndir og myndskeið á síðunni. „Og áður en einhver spyr, nei, ekki svoleiðis!“ segir hún létt í lund.
„Þetta verður aðallega ég að fíflast og tala um það sem mér liggur á hjarta.“
Fairchild segir að margir muni eftir persónunum sem hún hefur leikið í gegnum tíðina, fötunum og túperaða hárinu. „Þeir vita kannski ekki hvað ég er mikill vísindanörd eða hversu auðveldlega systir mín fær mig til að hlæja. Mig langar að sýna meira af þeirri hlið á mér.“
Fairchild fetar þar með í fótspor leikkonunnar Donnu Mills, sem er þekkt fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Knots Landing og General Hospital. Mills var 85 ára þegar hún opnaði síðu á OnlyFans í júlí.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/2/1690211.jpg)