Friðarviðræður hefjast á morgun
Erlent | Morgunblaðið | 9.11.2026 | 6:00
Fulltrúar Evrópuþjóða munu taka þátt í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna með milligöngu Bandaríkjamannanna í Abú Dabí á morgun og miðvikudag. Þetta tilkynnti utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Noel Barrot, í gær.
Um er að ræða vissa stefnubreytingu því fram að þessu hafa Rússar lagst gegn aðkomu evrópskra þjóða að samningaviðræðum en þjóðarleiðtogar í álfunni hafa lagt áherslu á að öryggishagsmunir hennar verði tryggðir í hvers kyns friðarsamkomulagi.
Síðustu daga hafa árásir Rússa á úkraínska orkuinnviði haldið áfram en Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að herða árásir gagngert til að auka þrýsting fyrir friðarviðræður.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗