Éljagangur eða skúrir í dag
Innlent | mbl | 9.11.2026 | 6:13
Í dag er spáð norðlægri átt, 5 til 10 metrum á sekúndu og dálitlum éljum eða skúrum en slydda verður á norðaustanverðu landinu fram undir morgun.
Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig.
Það styttir upp víða um hádegi og kólnar, bjart verður með köflum, en áfram dálítil él á suðaustan- og austanverðu landinu.
Suðvestan 8-15 m/s verða á morgun og skýjað með köflum, en sums staðar stöku él. Snýst í hægari norðlæga átt síðdegis og léttir til. Hiti verður um frostmark, en 3 til 7 stig vestanlands að deginum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗