Varar við nýjum mannvirkjalögum
„Ófullnægjandi þarfagreining, óljósar forsendur og ósamræmd hönnunargögn leiða til mistaka, endurhönnunar og tafa á verktíma. Þetta kemur oftast í ljós á framkvæmdatíma, þegar dýrast er að breyta,“ segir Agnar Sigurjónsson framkvæmdastjóri Sjamma, sem ritar í blaðið grein um breytingar á mannvirkjalögum sem kynntar hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda.
Hann leggur áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og furðar sig á að þegar yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar sé að einfalda regluverk og draga úr byggingarkostnaði geri frumvarpið hvorugt. Margir deili áhyggjum af auknum kostnaði.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗