„Keðjureykjandi með allt á hornum sér“
Marta María Winkel bauð Jóni Atla Jónassyni rithöfundi og leikskáldi á rúntinn á splunkunýjum BMW iX3 þar sem þau ræddu ástina, erfiðar manneskjur, unglingsárin og nýjustu bók Jóns Atla, Dauðinn er bara myrkur. Jón segir að það sé ákveðinn galdur fólginn í því þegar tvær erfiðar manneskjur finna hvor aðra.
Í nýjustu bók Jóns, Dauðinn er bara myrkur, er ekki bara að finna spennu og glæpi heldur einnig ástarsögu. Þar segir frá pari sem eru bæði flóknar persónur en ná engu að síður að tengjast á sérstakan hátt.
„Þetta er ástarsaga líka. Svona tvö erfið eintök finna hvort annað,“ segir Jón og veltir fyrir sér hvers vegna fólk laðist stundum að manneskjum sem geta jafnframt gengið verulega á taugar þess.
„Þú getur hatað einhvern og elskað hann á sama tíma, er það ekki?“ spyr hann.
Jón segir að þegar fólk finni hinn helminginn sinn geti sú manneskja líka haft einstakt lag á því að gera það alveg brjálað. Í samtalinu er því meðal annars velt upp hvort það sé einmitt vegna þess hve sterkar tilfinningarnar eru.
Var keðjureykjandi unglingur með allt á hornum sér
Á rúntinum rifjar Jón einnig upp unglingsár sín í Reykjavík. Hann ólst upp í Vesturbænum og gekk í Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem hann tók þátt í leiklistarstarfi.
Þegar hann er spurður hvernig sautján ára útgáfan af honum hafi verið stendur ekki á svarinu.
„Hann væri keðjureykjandi og með allt á hornum sér örugglega.“
Jón tók meðal annars þátt í uppsetningu á Rocky Horror í MH ásamt Páli Óskari og segir það hafa verið mikið ævintýri. Hann viðurkennir þó að hvorki leiklist né söngur hafi verið hans sterkasta hlið.
Finnur jafnvægi í glímunni
Jón Atli hefur um árabil stundað glímu í Mjölni og segir samfélagið þar afar gefandi. Þótt bardagaíþróttir geti við fyrstu sýn virst ofbeldisfullar segir hann raunveruleikann allt annan.
„Þetta er eiginlega andstaðan við ofbeldi,“ segir hann.
Glíman hefur einnig haft áhrif á skrif hans og í nýjustu bókinni skipa bæði júdó og jiu-jitsu ákveðinn sess.
Jón vinnur nú að nýju leikriti fyrir Borgarleikhúsið og segir ritstörfin krefjast mikillar einveru og aga. Hann bendir á að þótt marga dreymi um að skrifa bækur sé raunveruleikinn ekki alltaf jafn rómantískur og fólk ímyndi sér.
„Þú þarft bara að mæta og gera þetta,“ segir hann og bætir við að stundum líði heilu mánuðirnir án þess að manni finnist nokkuð gerast.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗