Langsóttur samanburður við Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja sést hér til vinstri og turninn við Skúlagötu til hægri. Arkitekt hans lagði upp með að byggingarnar myndu kallast á. mbl.is/Karítas
Fjarstæðukennt er að tala um að 17 hæða turn Radisson-hótelkeðjunnar, sem er að hluta til risinn við Skúlagötu, kallist á við eitt helsta kennileiti borgarinnar, Hallgrímskirkju, eins og arkitekt byggingarinnar, hinn skoski Tony Kettle, lagði upp með á sínum tíma. Þetta segir Andrés Narfi Andrésson arkitekt, sem hefur fjallað um byggingarsögu Hallgrímskirkju og stöðu hennar sem kennileitis.
„Mér finnst nú mjög langsótt að tala um að þetta kallist á við Hallgrímskirkjuturninn, það er nú frekar að þetta kallist á við aðra turna sem eru þarna við Skúlagötuna. Mér finnst þetta nú eiginlega fjarstæðukennt,“ segir Andrés Narfi.
Framkvæmdir við turninn, sem vakið hefur úlfúð vegna stærðar sinnar og hönnunar, voru stöðvaðar í síðustu viku. Óvissa ríkir um framtíð og fjármögnun verkefnisins.
Ívar Pálsson er hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi yfirlögfræðingur skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar. Spurður hvort borgin hafi einhverjar raunhæfar lagalegar leiðir til að hafa áhrif á framtíð byggingarinnar og hvort borgaryfirvöld gætu jafnvel undir einhverjum kringumstæðum farið fram á að hún yrði rifin segir hann:
„Byggingarfulltrúinn hefur ýmis þvingunarúrræði samkvæmt lögum en það þarf ansi mikið til til þess að rífa hús niður. Ég myndi segja að það væri mjög ólíkleg niðurstaða og ég veit ekki á hvaða forsendum það ætti að vera. En það eru þvingunarúrræði til staðar, til dæmis til að knýja á um að ljúka framkvæmdum.“ Það geti bæði verið í formi dagsekta eða einfaldlega með því að klára framkvæmdir á kostnað framkvæmdaraðilans.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗