Reyndist vera með heilaæxli

Til vinstri sést æxlið í heila Björns. Til hægri er heilinn eftir aðgerð.

Björn Árni Ágústsson segir það hafa bjargað lífi sínu að leita til heilsutæknifyrirtækisins Intuens, sem uppgötvaði stærðarinnar heilaæxli í höfði hans.

Vikurnar áður hafði Björn ítrekað leitað til heilsugæslunnar vegna ýmissa einkenna á borð við orkuleysi, skjálfta og minni hreyfigetu.

Hann ýtti á eftir rannsóknum en upplifði framtaksleysi og fékk að eigin mati óviðunandi svör. Erfitt hafi verið að ná í lækna og ekkert orðið af símtölum frá læknum sem hann hafði beðið um.

Eftir um mánuð og mikla hvatningu frá eiginkonu sinni leitaði hann til Intuens þar sem hann var um leið settur í segulómun. Þar kom í ljós að hann var með stórt heilaæxli, um sjö sentimetra að stærð, sem þrýsti á heilann og olli þeim einkennum sem sett höfðu líf hans úr skorðum. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅