Ein stærsta keðja heims selur íslenskt salt

Endurhanna þurfti umbúðir Saltverks sérstaklega fyrir Costco.

Endurhanna þurfti umbúðir Saltverks sérstaklega fyrir Costco.

Ein stærsta verslanakeðja heims, Costco, hefur hafið sölu á íslensku salti frá framleiðandanum Saltverki í verslunum sínum í Bandaríkjunum. Til að byrja með verður saltið selt í verslunum keðjunnar á Los Angeles-svæðinu en ef vel gengur er ekki ósennilegt að því verði dreift víðar.

Stofnandi Saltverks, Björn Steinar Jónsson, segir að um sé að ræða langstærstu einstöku sölu fyrirtækisins sem kunni sömuleiðis að opna á fleiri dyr.

„Að komast í gegnum gæðaúttektir Costco getur opnað margar dyr, sérstaklega ef vel gengur. Þetta er því mjög spennandi fyrir okkur og gæti orðið mjög stórt skref. Fyrst og fremst snýst þetta þó um að láta þetta ganga vel og geta síðan fylgt því eftir,“ segir Björn í samtali við Morgunblaðið í dag. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅