„Ég felldi tár þegar ég sá tilfinningarnar hjá henni“

„Að sjálfsögðu var ég glaður fyrir hönd Grindavíkur og á sama tíma var ég líka svekktur fyrir hönd þeirra sem töpuðu,“ sagði Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í Dagmálum.

Hannes, sem er 51 árs gamall, var ráðinn framkvæmdastjóri KKÍ árið 2023 eftir að hafa verið formaður sambandsins frá árinu 2006.

Átti erfitt með sig í verðlaunaafhendingunni

Karlalið Grindavíkur varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í þrettán ár, síðasta vor, eftir sigur gegn Tindastóli í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins, 3:1, en þetta var þriðji Íslandsmeistaratitill félagsins.

„Við vitum hver er þjálfari, hver er leikmaður og hver stendur á bak við félagið,“ sagði Hannes.

„Fyrir fjölskyldu og bræður sem hefur gengið í gegnum ýmislegt og ekki bara jarðhræringarnar. Strákarnir misstu pabba sinn mjög óvænt í fyrra og allt þetta gerir það að verkum að tilfinningarnar verða mjög miklar.

Það var bara þannig að mamma strákanna sat fyrir aftan mig þegar þetta var að gerast á lokamínútunum. Mér varð litið til hennar og ég felldi tár þegar ég sá tilfinningarnar hjá henni og ég átti erfitt með mig í verðlaunaafhendingunni því þetta var mjög fallegt augnablik í ljósi alls. Ég er mjög þakklátur fyrir það að hafa fengið að taka þátt í þessu augnabliki,“ sagði Hannes meðal annars.

Viðtalið við Hannes í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Ólafur Ólafsson, Jóhann Þór Ólafsson og Þorleifur Ólafsson ásamt móður sinni Þórunni Sigurlaugu Jóhannsdóttur á góðri stundu. Ljósmynd/Facebook

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅