Reyndu að kaupa kjarnorkusprengju í Moskvu – Ótrúleg saga úr undirheimum Rússlands

Þrír rússneskir blaðamenn lögðu upp í stórhættulegan leiðangur um undirheima Moskvu árið 1993 með það að markmiði að komast að því hvort raunverulega væri hægt að kaupa kjarnorkusprengju á svörtum markaði.

Þeir þóttust vera milliliðir fyrir erlendan kaupanda, hittu vafasama kaupsýslumenn og fengu geislavirk efni í hendurnar. Rannsóknin náði hámarki þegar þeim var boðinn meintur kjarnorkusprengjuoddur fyrir 150 þúsund Bandaríkjadali.

Þessi ótrúlega saga er rifjuð upp í nýlegri umfjöllun Meduza, óháðs rússnesks fréttamiðils sem starfar frá Riga í Lettlandi. Miðillinn var stofnaður árið 2014 af rússneskum blaðamönnum og hefur meðal annars vakið athygli fyrir rannsóknir sínar á rússneskum stjórnvöldum, spillingu og stríðinu í Úkraínu.

Vildu kanna hvort sögusagnirnar væru sannar

Árið 1993, ekki löngu eftir fall Sovétríkjanna, voru vestrænir fjölmiðlar fullir af sögum um að kjarnorkuvopn og geislavirk efni, auðgað úran þar á meðal, væru til sölu í Rússlandi. Óttast var að hryðjuverkasamtök gætu komist yfir slíkan varning.

Dmitry Muratov, sem síðar hlaut friðarverðlaun Nóbels, ákvað ásamt blaðamönnunum Kirill Belyaninov og Vladimir Filin að láta reyna á þessar sögusagnir.

„Það var nánast látið eins og maður gæti farið á markað á sunnudegi og fundið þar, á milli gamalla kvenna sem seldu gúrkur, einhvern ófrýnilegan náunga með kjarnorkusprengju,“ segir Belyaninov í samtali við Meduza.

Þremenningarnir nýttu tengsl sín innan hersins og öryggisstofnana til að hafa uppi á mögulegum seljendum. Þeir leituðu einnig í smáauglýsingum dagblaða þar sem geislavirk efni voru boðin til sölu.

Til að vekja ekki grunsemdir þóttust þeir vera kaupsýslumenn með auðugan erlendan kaupanda á bak við sig. Við sum tækifæri mættu þeir á fundi í lánuðum Volvo með einkabílstjóra. Muratov lék auðugan kaupsýslumann, Filin var í hlutverki lífvarðar og Belyaninov lék tengilið. Bifreiðin og ökumaðurinn voru fengin að láni hjá kunningja Filins

Kærastan henti honum út

Á einum fundinum buðu seljendur Belyaninov efni sem þeir sögðu vera svokallaða MOX-blöndu, blöndu úrans og plútóníums. Að sögn seljendanna var um að ræða úran sem áður hafði verið notað í kjarnakljúfi og síðan blandað plútóníumi. Þeir fullyrtu að auðgunarhlutfallið væri allt að 40 prósent.

Seljendurnir sýndu honum um metra langt málmrör sem hafði verið barið saman í báða enda. Þeir sögðu að hið verðmæta efni væri inni í rörinu. Geislamælir sem Belyaninov hafði meðferðis sýndi að það gaf frá sér geislun, þótt hún væri ekki mikil.

Honum tókst að sannfæra mennina um að lána sér rörið í tvo daga svo hægt væri að rannsaka innihaldið.

Hann fór með það heim til sín, þar sem kærastan spurði hvað hann væri með.

„Æ, bara hluta úr kjarnorkusprengju. Ekki hafa áhyggjur. Ég set þetta bara í skrifborðsskúffuna,“ sagðist hann hafa svarað.

Viðbrögðin voru afdráttarlaus.

„Mér var umsvifalaust hent út.“

Rörið endaði því í farangursrými gamla, ryðgaða Zhiguli-bílsins hans, þar sem það lá yfir nóttina.

Rannsókn næsta morgun leiddi í ljós að efnið var vissulega geislavirkt en gagnslaust til kjarnorkusprengjugerðar.

Sprengjuoddur undir yfirbreiðslu

Blaðamennirnir hittu fjölda manna næstu mánuði. Sumir reyndu að selja þeim geislavirkan úrgang en aðrir voru hreinir svikahrappar.

Svo kom að fundi í Yasenevo-hverfinu í Moskvu þar sem rannsókn þeirra tók óvænta stefnu.

Menn sem blaðamennirnir hittu í dimmum stigagangi fjölbýlishúss leiddu þá í bílskúr. Þar, í einu horninu undir yfirbreiðslu, var hlutur sem leit út eins og kjarnorkusprengjuoddur.

Belyaninov tók ljósmyndir og sýndi þær sérfræðingum rússneska varnarmálaráðuneytisins.

Þeir staðfestu að hluturinn líktist sprengjuoddshluta eldflaugar en gátu ekki sagt hvort hann innihéldi raunverulega kjarnorkuhleðslu.

Þegar blaðamaðurinn sneri aftur til seljendanna var verðið skýrt: 150 þúsund Bandaríkjadalir.

Til samanburðar segir Belyaninov að á þessum tíma hafi mátt kaupa íbúð í eftirsóttu hverfi Moskvu fyrir um 15 þúsund dali.

Blaðamennirnir höfðu engan veginn efni á kaupunum og þar með lauk rannsókninni.

Allir enn á lífi

Enn þann dag í dag veit Belyaninov ekki hvort sprengjuoddurinn var raunverulegur eða aðeins tómt málmhylki.

Hann segir rannsóknina hafa leitt í ljós að svartur markaður með kjarnorkuvopn – eða að minnsta kosti efni til að búa til kjarnorkuvopn – var að miklu leyti byggður á svikum, ýkjum og tækifærismennsku. Þó hafi blaðamennirnir einnig rekist á geislavirk efni sem hefðu getað valdið alvarlegri mengun.

Aðspurður hvort seljendurna hafi aldrei grunað að þeir væru að eiga við blaðamenn svarar hann:

„Ég efast um að þeim hafi nokkurn tíma komið það til hugar. Þeir hafa greinilega ekki grunað neitt, því við erum allir enn á lífi.“

Hann viðurkennir að þeir hafi tekið mikla áhættu og að öryggisráðstafanirnar hafi verið takmarkaðar. Þeir höfðu meðal annars fengið lánaðan hlífðarfatnað frá Greenpeace, en hann var aldrei notaður.

„Æska, heimska og adrenalín. Það er eina skýringin á þessu öllu,“ segir Belyaninov.

Þrátt fyrir áhættuna urðu blaðamennirnir ekki fyrir hótunum eftir birtingu rannsóknarinnar. Hún vakti hins vegar mikla athygli og varð ein eftirminnilegasta rannsóknin í sögu Novaya Gazeta.

Dmitry Muratov var einn af stofnendum blaðsins árið 1993 og gegndi síðar starfi aðalritstjóra þess um áratugaskeið. Hann hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2021 fyrir baráttu sína fyrir tjáningarfrelsi og sjálfstæðri blaðamennsku í Rússlandi.

Novaya Gazeta hefur lengi verið einn þekktasti óháði fjölmiðill Rússlands og fjallað af hörku um spillingu, mannréttindabrot og valdhafa landsins. Nú virðist hins vegar komið að kaflaskilum í sögu blaðsins. Ritstjórnin hefur tilkynnt að starfsemi þess í Moskvu verði hætt í dag, 9. nóvember, eftir áralangan þrýsting rússneskra stjórnvalda.

Það er einmitt af því tilefni sem Meduza rifjar upp þessa óvenjulegu rannsókn frá fyrstu starfsárum blaðsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅