Með bestu nýtingu í Evrópu
Sky Sports birtir skemmtilega tölfræði yfir bestu skotnýtingu í knattspyrnudeildum Evrópu á Instagram-síðu sinni þar sem Andri Lucas Guðjohnsen er efstur.
Andri Lucas skoraði enn eitt markið í gær þegar Blackburn vann West Ham 2:1 í ensku 1. deildinni í gær.
Andri hefur nú skorað tíu mörk í fjórtán deildarleikjum á tímabilinu og ellefu mörk í fimmtán leikjum í öllum keppnum með Blackburn og var tilnefndur sem leikmaður októbermánaðar.
Andri er efstur á listanum yfir bestu skotnýtinguna með 50% nýtingu sem þýðir að annað hvert skot sem Andri reynir endar í netmöskvunum.
Á lista yfir efstu fimm eru ekki ómerkari nöfn en Raphinha, Joao Pedro, Erling Haaland og Alexander Isak.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/53/1685384.jpg)