„Erum ekki í þessu bara til að vera með“
Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari karlaliðs Hauka í fótbolta fór upp með liðið úr 2. deild á fyrsta tímabili sínu og mun liðið leika í 1. deildinni næsta sumar.
Hann segir að langtímamarkmiðið sé að koma Haukum aftur í efstu deild innan nokkurra ára.
Guðjón Pétur var einmitt leikmaður liðsins á eina tímabili karlaliðsins í efstu deild, árið 2010, en til gamans má geta þess að núverandi landsliðsþjálfari, Arnar Bergmann Gunnlaugsson, lék sömuleiðis með Haukaliðinu það ár.
„Langtímamarkmiðið er skýrt. Við ætlum að bæta okkur jafnt og þétt á öllum sviðum. Við stefnum að því að komast í efstu deild innan þriggja til fjögurra ára,“ sagði Guðjón Pétur.
Vaxandi stuðningur
Guðjón segir einnig ánægjulegt að sjá stuðninginn við knattspyrnuliðið aukast. Þegar Haukar léku í efstu deild á sínum tíma mættu 800 til 1.000 manns á heimaleiki og hann telur góð tækifæri til að endurvekja þann áhuga.
„Hverfið hefur tvöfaldast að stærð og við horfum því fram á bjarta tíma. Til þess þurfum við að ná árangri inni á vellinum og þá koma stuðningsmenn með okkur í þessa vegferð.
Við bjuggum til félagsaðstöðu fyrir stuðningsmenn í gamla vallarhúsinu og það var einstaklega ánægjulegt að sjá mætinguna aukast jafnt og þétt yfir sumarið,“ sagði hann.
Haukar búa yfir ríkulegri hefð fyrir velgengni í öðrum boltagreinum en handboltalið félagsins hafa löngum verið flaggskip þess. Auk þess hefur kvennalið félagsins í körfubolta orðið Íslandsmeistari fimm sinnum.
Að hans mati eru allar forsendur til staðar fyrir því að Haukar geti byggt upp öflugt knattspyrnustarf til framtíðar, með sterkari innviðum, góðu baklandi og skýrum metnaði.
„Við viljum gera réttu hlutina til að ná árangri. Fólk vill sjá að við séum ekki í þessu bara til að vera með,“ sagði Guðjón Pétur Lýðsson.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗