Byggja innviði borgarlínunnar

Borgarlínan mun liggja fram hjá Háskólanum í Reykjavík.

Borgarlínan mun liggja fram hjá Háskólanum í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Nú er að hefjast annar áfangi framkvæmda við uppbyggingu innviða við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík (HR).

Verkið er hluti af borgarlínu og felur í sér breytingar á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum á svæðinu.

Sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju, aðskildu frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.

Núverandi hringtorgi á gatnamótum Nauthólsvegar og Menntavegar verður breytt í ljósastýrð gatnamót. Vestan Háskólans í Reykjavík verður byggð ný borgarlínustöð. Ný aðkoma verður gerð að aðalinngangi HR og ný aðkomugata gerð að Landhelgisgæslunni.

Áfram verður tryggt aðgengi fyrir akandi, gangandi og hjólandi vegfarendur auk almenningssamgangna, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Framkvæmdasvæði verktaka breytist þannig að við bætist svæði vestan Nauthólsvegar auk þess sem núverandi Menntasveigur lokast og verður vinnusvæði. Þetta hefur engin áhrif á uppsetningu bráðabirgðagöngu- og hjólastíga gegnum framkvæmdasvæðið frá áfanga eitt og ekki önnur áhrif á akstur en þau að Menntasveigur lokast og akstri er beint um bráðabirgðavegi gegnum bílastæði sunnan Menntasveigs.

Ein akrein verður áfram opin í hvora átt og stoppistöðvar Strætó verða áfram í notkun en kunna að færast til eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.

Áætlað er að framkvæmdir standi til 1. maí 2027. Þetta er samstarfsverkefni Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna. Verktaki er Grafa og grjót ehf. og verkfræðistofan EFLA hefur eftirlit. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅