Nóg af jákvæðum hlutum

Michael Carrick fór í gegnum allan tilfinningaskalann á hliðarlínunni í dag. AFP/Darren Staples

Michael Carrick knattspyrnustjóri Manchester United var svekktur eftir 4:4-jafnteflið gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði lið sitt hafa gert sjálfu sér erfitt fyrir með klaufalegum mistökum og mörkum sem það hefði átt að koma í veg fyrir.

Stjórinn taldi þó ýmislegt jákvætt í frammistöðunni og fannst United hafa verið sterkari aðilinn lengst af.

„Við gerðum sjálfum okkur erfitt fyrir með því að gefa frá okkur færi og mörk á stuttum tíma. Það gerði verkefnið mun erfiðara en það hefði þurft að vera.

Fótbolti snýst um augnablik og það sem gerist í vítateigunum tveimur. Ef við tökum út þessi mörk sem við hefðum auðveldlega getað komið í veg fyrir fannst mér við spila nokkuð vel og vera sterkari aðilinn lengst af. Ég er því vonsvikinn með að hafa ekki náð í sigur.

Mér fannst við hafa meiri yfirburði, verjast vel og pressa vel. Við gáfum þeim hins vegar augnablik sem höfðu áhrif á gang leiksins. Við enduðum leikinn vel og náðum að taka eitthvað jákvætt út úr honum, en það eru vonbrigði að hafa ekki unnið,“ sagði Carrick.

Aðspurður hvort hann sæi jákvæða punkta til að taka með sér inn í landsleikjahléið svaraði hann því játandi.

„Algjörlega. Það er meira en nóg af jákvæðum atriðum. Mörk breyta leikjum og við verðum að læra að takast á við það.

Varnarleikurinn er eitthvað sem við þurfum að bæta verulega, en við erum um þessar mundir að gera hlutina of erfiða fyrir okkur sjálfa á ákveðnum augnablikum.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅