Skemmdarverk unnin við MR: „Viva Verzló“

Innlent | mbl | 8.11.2026 | 22:28

Leiða má líkur að því að Verzlingur beri ábyrgð á skemmdarverkunum. mbl.is/Ólafur Árdal

Skemmdarverk voru unninn á íþróttahúsi Menntaskólans í Reykjavík um helgina. 

Einhver virðist þar hafa tekið sig til og spreyjað annars vegar „Viva Verzló“ og hinsvegar „Fuck MR“ á bygginguna. 

Af þessu að dæma má ætla að nemandi eða nemendur við Verzlunarskóla Íslands beri ábyrgð á skemmdarverkunum.  

Nemendur skólanna tveggja hafa tekist á nú á þessu skólaári en meðal annars voru mikil slagsmál á fótboltaleik milli skólanna á Seltjarnarnesi í október en þar fékk einn aðili flösku í höfuðið. Viðburðum í árlegu MR-VÍ vikunni var í kjölfarið frestað eða aflýst. 

Nemendur skólanna tveggja hafa tekist á nú á þessu skólaári en meðal annars voru mikil slagsmál á fótboltaleik milli skólanna á Seltjarnarnesi í október en þar fékk einn aðili meðal annars flösku í höfuðið. mbl.is/Ólafur Árdal

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅