Skemmdarverk unninn við MR: „Viva Verzló“
Innlent | mbl | 8.11.2026 | 22:28
Skemmdarverk voru unninn á íþróttahúsi Menntaskólans í Reykjavík um helgina.
Einhver virðist þar hafa tekið sig til og spreyjað annars vegar „Viva Verzló“ og hinsvegar „Fuck MR“ á bygginguna.
Af þessu að dæma má ætla að nemandi eða nemendur við Verzlunarskóla Íslands beri ábyrgð á skemmdarverkunum.
Nemendur skólanna tveggja hafa tekist á nú á þessu skólaári en meðal annars voru mikil slagsmál á fótboltaleik milli skólanna á Seltjarnarnesi í október en þar fékk einn aðili flösku í höfuðið. Viðburðum í árlegu MR-VÍ vikunni var í kjölfarið frestað eða aflýst.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
