Bill Gates með alvarlega aðvörun – Næstu 20 ár verða þau erfiðustu í sögunni
Hin hraðskreiða tækniþróun getur snúið vinnumarkaðnum, eins og við þekkjum hann, algjörlega á hvolf. Þetta segir Bill Gates, stofnandi Microsoft.
Hann lét þessi orð falla í hlaðvarpinu Decoder frá The Verge þegar rætt var um útbreiðslu gervigreindar. Hann sagði að gervigreind muni kasta samfélaginu út í mikla umbrotatíma áður en ávinningurinn kemur í ljós.
Hann sagði einnig að þessi þróun geti snúið vinnumarkaðnum algjörlega á hvolf og standi mannkynið frammi fyrir tveimur áratugum af áður óþekktri stærðargráðu hvað varðar ástandið á vinnumarkaði.
„Ég hef mestar áhyggjur af þessu 20 ára tímabili þar sem það verða sigurvegarar og taparar og mikil röskun,“ sagði Gates að sögn Newsner.
Hann sagði að í fyrstu verði það hin hefðbundna skrifstofuvinna sem gervigreindin mun ryðja úr vegi vegna minni kostnaðar og meiri afkasta. Framtíðarhorfurnar ná þó einnig til annarra starfa því vélknúið vinnuafl gervigreindar knýr nú þegar dyra í atvinnulífinu.
„Ef við hægjum ekki mjög á þróuninni eða stoppum, munum við fá vélmenni sem geta smíðað hús, ræktað matvæli og framkvæmt skurðaðgerðir. Ekkert af því, sem lifandi vinnuafl leggur af mörkum til efnahagsins, verður nauðsynlegt fyrir flestar vörur og þjónustu,“ sagði Gates.
Þegar hann var spurður um hlutverk fólks í framtíðinni sagði hann að verkefni á borð við matvælaframleiðslu og vöruflutninga muni í síauknum mæli færast yfir til véla.
Hann sagði að þegar upp verður staðið muni aðeins fjórir geirar verða eftir sem fólki verður ekki skipt út í. Þetta eru líffræði, orkugeirinn, háþróuð hugbúnaðargerð og íþróttastjörnur.
„Þú skilur, eins og hafnabolti. Við nennum ekki að horfa á tölvur spila hafnabolta,“ sagði hann.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗