Sterkur útisigur Barcelona
Barcelona vann 2:1-útisigur á Atlético Madríd í stórleik 12. umferðar spænsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld.
Giuliano Simeone kom heimamönnum yfir á 10. mínútu en Fermín López jafnaði metin fyrir Barcelona rétt fyrir hálfleik. Fermín var aftur á ferðinni á 66. mínútu og skoraði sigurmark gestanna.
Með sigrinum er Barcelona komið með 33 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum meira en Real Madrid sem er í öðru sæti. Atlético Madríd er áfram í þriðja sæti með 28 stig.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
