Óttast ekki að gervigreindin muni hafa af sér starfið
Kristján Viðar Haraldsson, heilari og lífsþjálfi, segist ekki óttast það að gervigreind muni hafa af honum vinnuna og gera starf hans óþarft. Hann bendir á að gervigreind komi aldrei til með að koma í stað beinna mannlegra samskipta, tengsla og nándar. Þvert á móti kunni þörfin fyrir raunveruleg samskipti að verða enn meiri eftir því sem tækninni fleygir fram.
„Það að senda skilaboð er alls ekki það sama og að tala við einhvern. Og að tala við einhvern í síma er ekki heldur það sama og að hitta einhvern,“ segir hann.
Kristján segir samskipti fólks hafa tekið miklum breytingum síðustu ár og vandamál skjólstæðinga hans í takti við þær. Einmanaleiki og félagsleg einangrun er vaxandi, stöðugur samanburður og kvíði sömuleiðis. Þrátt fyrir að gervigreind geti veitt ýmis gagnleg ráð kemur hún, að sögn Kristjáns, aldrei til með að koma í stað mannlegrar tengingar og samneytis.
„Nei, nei, AI er að hjálpa mér og öðrum og það verður aldrei meira að gera,“ segir Kristján
„Af því það er bara ekki það sama og verður aldrei það sama og að hitta manneskju.“
Hins vegar segir Kristján það eðlilegt að hræðast nýja og framandi hluti og það sem maður ekki þekkir.
„Við höfum alltaf tilhneigingu til þess að vera á móti því sem kemur. Og það er ekkert skrýtið því við hræðumst oft það sem við þekkjum ekki. En ég held að þetta snúist nú alltaf á endanum um hvernig við komum til með að nota þetta,“ segir hann og bendir á að hætturnar geti leynst víða ef ekki er farið gætilega við notkun á gervigreind.
„Það er fullt af hættum í sambandi við gervigreind. Þetta er mjög öflugt en ég held að það skipti nú meira málið að við séum einhvern veginn meðvituð um hvernig við ætlum að nota þetta og við þurfum að passa okkur á því að vera í samskiptum við fólk.“
Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við Kristján Viðar í Dagmálum í heild sinni:
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗