Tekur við bankastjórastöðunni í Blábankanum

Blábankastjórinn. Ásgeir Höskuldsson er nýtekinn til starfa.

Blábankastjórinn. Ásgeir Höskuldsson er nýtekinn til starfa.

Ásgeir Höskuldsson er einn af bankastjórum þessa lands þótt starfið sé óhefðbundið bankastjórastarf. Hann tók nýlega við starfinu í Blábankanum á Þingeyri en það er nýsköpunarmiðstöð sem er til húsa í ljósbláa húsinu þar sem áður var bankastarfsemi.

„Húsið hefur sett svip sinn á bæjarmyndina á Þingeyri en það var byggt um 1920. Það var upphaflega verslunar- og athafnahús en síðar Sparisjóður og loks Landsbankinn,“ segir Ásgeir þegar Morgunblaðið tekur púlsinn á honum.

Starf bankastjórans var auglýst í haust og á þriðja tug sóttu um en ákveðið var að setja tvö hlutastörf saman í eitt fullt starf hjá Blábankanum. „Mikilvægast við Blábankann er stuðningurinn við samfélagið í Dýrafirði og á Þingeyri og raunar stuðningur við Vestfirði ef við horfum á þetta víðtækar. Þetta er í grunninn frumkvöðlasetur þar sem hugmyndir geta fundið líf og dafnað í bland við viðburðastjórnun, fundaraðstöðu og slíkt. Það má kalla þetta fjölþætt nýsköpunar- og samfélagssetur,“ segir Ásgeir og segir hlutverk Blábankans enn í mótun enda einungis níu ára gamalt verkefni.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅