Hringja hvor í aðra fimmtíu sinnum á dag
Kris Jenner og dætur hennar Kourtney, Khloé og Kim Kardashian á verðlaunahátíð árið 2019. Þær sendu móður sinni hlýjar kveðjur á Instagram í tilefni af 71 árs afmæli hennar. AFP/Jean-Baptiste Lacroix
Raunveruleikastjarnan Kris Jenner fagnaði 71 árs afmæli sínu í faðmi fjölskyldunnar á dögunum. Dætur hennar rifjuðu upp minningar frá uppvaxtarárunum á Instagram og leyfðu fylgjendum sínum að skyggnast inn í afmælisboðið.
Kim Kardashian birti myndskeið þar sem fjölskyldan söng afmælissönginn fyrir Jenner þegar hún fékk köku skreytta ferskum berjum og átta logandi kertum. Kim deildi einnig fjölskyldumyndum frá ólíkum tímum. Á einni þeirra sést hún með móður sinni, systkinum sínum og ömmu sinni, Mary Jo Shannon, sem lést í júlí, 91 árs að aldri.
Khloé Kardashian sagði hversdagslegu stundirnar með móður sinni þær dýrmætustu. Þær hringdu hvor í aðra fimmtíu sinnum á dag og stundum þyrftu þær aðeins að líta hvor á aðra til að fá hláturskast.
„Ef ég ætti þúsund líf myndi ég finna þig í hvert einasta sinn. Og í hvert sinn myndi ég hiklaust velja þig sem mömmu,“ skrifaði Khloé.
Kylie Jenner dró fram upptöku frá hrekkjavökunni árið 1999 þegar hún og móðir hennar klæddust báðar búningi Dóróteu úr Galdrakarlinum í Oz.
Kylie sagðist þakklát fyrir ástina sem hún hefði alist upp við og kvað það dýrmætt að geta veitt eigin börnum sömu ást.
Kylie Jenner segir dýrmætt að geta sýnt börnum sínum sömu hlýju og hún fékk frá móður sinni í æsku. Skjáskot/Instagram
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
