Kristall skoraði í endurkomu Brann

Kristall Máni Ingason.

Kristall Máni Ingason. Ljósmynd/Brann

Kristall Máni Ingason skoraði fyrra mark Brann í 2:2-jafntefli liðsins gegn Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 

Heimamenn í Fredrikstad komust í 2:0 áður en að Kristall Máni minnkaði muninn á 82. mínútu. Brann jafnaði svo metin þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og tryggði sér eitt stig. 

Brann er í 7. sæti deildarinnar með 33 stig.

Kristall Máni lék allan leikinn í liði Brann og Sævar Atli Magnússon lék fyrstu 75 mínúturnar.

Eggert Aron Guðmundsson og Kjartan Már Kjartansson léku ekki með Brann vegna meiðsla

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅