Jack Reacher á Íslandi?
Rithöfundurinn góðkunni Lee Child gaf sér tíma til að spjalla við blaðamann frá heimalandi sínu Englandi þar sem hann býr nú eftir tæpra þriggja áratuga búsetu í Bandaríkjunum. Child er þekktur fyrir bækurnar um Jack Reacher, fyrrverandi herlögregluforingja sem ferðast um Bandaríkin og leysir flókin sakamál með hörku. Fyrsta bókin um Reacher, Killing Floor, kom út árið 1997 og hlaut höfundur verðlaun fyrir bestu frumraun í glæpasagnagerð. Bækurnar um Reacher eru nú 31, en sú nýjasta, Chain Reaction, kom út nú í haust. Síðustu sex árin hefur bróðir hans Andrew Child verið meðhöfundur bókanna.
Bækur Childs hafa selst í yfir 200 milljónum eintaka um allan heim, sem þýðir að einn af hverjum fjörutíu jarðarbúum á bók eftir Child. Bækurnar hafa verið þýddar á fjölda tungumála og mynduðu grunn að bæði kvikmyndum með Tom Cruise og sjónvarpsþáttunum Reacher.
Child er á leiðinni til Íslands í næstu viku á Iceland Noir og verður það hans fyrsta Íslandsferð. Hann segist hlakka mikið til; ekki síst er hann spenntur að hitta vini sína, íslensku glæpasagnahöfundana.
Draumar og væntingar
Þegar þú byrjaðir á fyrstu bókinni, dreymdi þig þá um heimsfrægð og að sagan myndi jafnvel enda á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi?
„Þú notar orðið dreyma og já, að sjálfsögðu dreymdi mig um að þetta gengi upp. Ég vonaði að þetta yrði risastórt og kvikmyndir yrðu gerðar, en það er munur á draumum og raunhæfum væntingum. Mig dreymdi jafnvel um að þetta yrði enn betra en það var, að ég myndi bara skrifa eina bók og það væri nóg; ég þyrfti aldrei að vinna framar!“ segir hann og hlær.
„En ef ég hugsaði raunsætt hélt ég að ég gæti kannski rétt lifað af þessu í nokkur ár. Ég bjóst aldrei við þessum vinsældum.“
Hvernig skapaðir þú karakterinn Jack Reacher og er eitthvað líkt með ykkur tveimur?
„Ég held það sé nánast ógerlegt að skrifa skáldskap án þess að spegla sig í aðalpersónunni að einhverju leyti. Kannski snýst það um að hún sé betri útgáfa af mér, og með henni læt ég drauma mína rætast. En kannski sótti ég mest í það sem ég sjálfur hafði lesið og haft ánægju af í skáldskap. Ég var að vinna innan langrar frásagnarhefðar um hinn óvænta ferðalang, hinn dularfulla ókunnuga mann sem finna má í frásagnarhefðum nánast allra þjóða í gegnum aldirnar. Þetta er sú tegund flakkara sem birtist, vinnur góðverk og leysir úr vandamálum. Bandaríkjamenn telja gjarnan að þeir hafi fundið þessa persónugerð upp á tímum vestranna, en svo er ekki. Þeir fengu hana að láni frá Evrópu miðalda, sem aftur fékk hana að hluta úr norrænum sögum og grískri goðafræði. Hún á rætur í mjög mannlegri þörf: þegar við eigum í vanda viljum við að einhver birtist og leysi hann fyrir okkur. Og sú þörf hefur kallað fram sömu persónuna aftur og aftur í gegnum aldirnar,“ segir Child.
„Sumir vilja að þeim sé hjálpað og aðrir vilja vera þeir sem hjálpa. Þetta uppfyllir því óskir allra,“ segir hann.
Að hætta á toppnum
Árið 2020 hóf yngri bróðir Lees, Andrew Child, að skrifa með honum og hefur nú að mestu tekið yfir skrifin.
„Hann skrifar allar línurnar en allt verður til í samtali. Við förum yfir hvað er áhugavert og heillandi og við erum sammála um hvers konar persónu okkur líkar illa við og verður því illmennið. Að því leyti vinnum við saman, þótt hann vinni nú alla erfiðisvinnuna.“
Hvers vegna tók Andrew við, vildir þú komast á eftirlaun?
„Það á rætur að rekja til æskunnar þegar ég fór á bókasöfn og spændi í mig bókaflokka eftir ákveðna höfunda. Þessar bækur voru frábærar, þar til allt í einu að þær voru það ekki. Það kemur að því hjá öllum höfundum að orkan dvínar eða innblásturinn hverfur. Ég man að sem barn hataði ég þetta og fannst ég svikinn. Þannig að þegar ég gerðist rithöfundur lofaði ég sjálfum mér að ég myndi ekki láta þetta fara svona. Ef ég fyndi að mig skorti kraftinn myndi ég hætta eða finna aðra lausn. Ég skrifaði í 25 ár og var að eldast og fann að það var að gerast. Ég hefði getað skrifað í nokkur ár í viðbót, en eins og með góða íþróttamenn er betra að hætta þegar hæst ber svo fólk muni ekki eftir mér sem misheppnuðum rithöfundi,“ segir Child.
Einn af hverjum fimmtíu
Lee Child segist hafa lesið töluvert af glæpasögum eftir íslenska höfunda og sumum þeirra hefur hann kynnst persónulega.
„Það er þess vegna sem ég þáði boðið. Ég er í fyrsta lagi alveg heillaður af því hvernig í svona fámennu þjóðfélagi þið getið átt svona marga frábæra rithöfunda. Einn af hverjum fimmtíu Íslendingum er stórkostlegur krimmahöfundur,“ segir hann kíminn.
Gætir þú nýtt þér hið dramatíska íslenska landslag sem sögusvið fyrir Jack Reacher?
„Já, yfirleitt er sögusvið hans í litlum samfélögum. Oft eru fáar persónur með eitt sérstakt vandamál. Þannig að Ísland gæti verið fullkomið. Eina spurningin er: af hverju væri hann þar? Kannski er hann að fljúga yfir Atlantshafið og þarf að lenda skyndilega vegna bilunar,“ segir Child og telur ekkert ólíklegt að Íslandsferðin muni kveikja á nýjum hugmyndum.
„Þegar maður er rithöfundur getur allt kveikt nýjar hugmyndir. Allar ferðir, nýir staðir og nýtt fólk sem maður hittir getur verið uppspretta nýrra hugmynda.“
Ítarlegt viðtal er við Lee Child í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
