Nágrannarnir töldu hana vera vingjarnlega húsmóður – Fortíð hennar var kolsvört
Pressan
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 21:30
Hermine Braunsteiner eftir að hún flutti til Bandaríkjanna.
Í kyrrlátri einbýlishúsagötu í Maspeth í Queens í New York bjó Hermine Ryan á sjöunda áratug síðustu aldar. Nágrannarnir þekktu hana bara af góðu. Hún var vingjarnleg og iðin austurrísk kona sem var gift uppgjafahermanninum Russell Ryan.
Hermine sinnti heimilinu, hugsaði um sjálfa sig og líktist einna helst konu sem naut hins friðsama eftirstríðsdraums í botn.
En á bak við rólegt yfirborðið leyndist einn illræmdasti böðull þriðja ríkis Hitlers: Hermine Braunsteiner. Í Majdanek útrýmingarbúðunum gekk hún undir nafninu „Die stutende Stute“ (traðkandi hryssan).
Hermine fæddist í Vín í Austurríki 1919. 1939 réði hún sig starfa sem fangavörður. Þetta gerði hún til að hafa tryggar tekjur.
Hún hóf störf í kvennafangabúðunum Ravensbrück þar sem hún lærði fljótt hrottalegar refsiaðferðir og varð fljótt þekkt fyrir ótrúlegan aga.
Hin raunverulega grimmd hennar kom berlega í ljós þegar hún var send til starfa í Majdanek útrýmingarbúðunum í Póllandi í október 1942. Hún vann sig fljótlega upp í stöðu aðstoðarfangabúðastjóra.
Fangarnir voru lafhræddir við hana. Hún var alltaf í stífpússuðum einkennisbúningi og með reiðsvipu og í járnlögðum stígvélum. Fangarnir lærðu fljótt að óttast fótatak hennar. Hún hikaði ekki við að beita reiðsvipunni á konur sem drógust aftur úr í vinnu eða stóðu ekki teinréttar klukkustundum saman í bítandi frosti eða drulluleðju.
Hermine Braunsteiner í einkennisbúningi sínum.
Viðurnefnið „traðkandi hryssan“ fékk hún vegna þeirra hrottalegu aðferða sem hún beitti við að refsa föngum og taka af lífi. Vitni lýstu því síðar að hún hefði í bókstaflegri merkingu traðkað veikburða konur og börn til dauða með þungum stígvélahælum.
Hún var sérstaklega þekkt fyrir hlutverk sitt þegar kom að því að velja hverjir færu í gasklefana. Þegar mæður og börn komu saman í yfirfylltum lestarvögnum sá hún um að skilja þau að og beitti ofbeldi við það. Ef smábarn grét, greip hún oft í hár þess eða fætur og kastaði því upp á pall vörubíla sem óku föngunum í gasklefana. Sadismi hennar var svo mikill að hann var vel þekktur hjá öðrum fangavörðum úr röðum SS. Fangar sögðu síðar frá því að hún hefði persónulega rekið mörg hundruð börn inn í gasklefana og hafi lamið þau á meðan.
Nýtt líf
Þegar stríðinu lauk flúði hún aftur til Vínarborgar. Austurrísk yfirvöld dæmdu hana í fangelsi fyrir að hafa misþyrmt föngum í Ravensbrück og sat hún í fangelsi í þrjú ár. Engin uppgötvaði níðingsverk hennar í Majdanek.
Eftir að hún losnaði úr fangelsi kynntist hún bandarískum hermanni. Þau gengu í hjónaband og fluttu til Bandaríkjanna 1959 þar sem hún fékk ríkisborgararétt. Í tæplega áratug lifði hún rólegu lífi í úthverfinu sínu.
Simon Wiesenthal
En fortíðin náði henni þegar nasistaveiðarinn Simon Wiesenthal hafði uppi á eftirlifendum frá Majdanek og safnaði sönnunargögnum gegn Hermine.
Blaðamaður frá The New York Times bankaði upp á hjá henni 1964 og þegar hann bar fortíð hennar upp á hana, neyddist hún til að játa hver hún var en sagðist aðeins hafa fylgt fyrirmælum og hefði nú þegar tekið út refsingu sína.
Afhjúpunin skók samfélagið. Hún var svipt bandarískum ríkisborgararétti því hún hafði leynt því að hún var stríðsglæpamaður.
Hún var framseld til Vestur-Þýskalands 1973 svo hægt væri að sækja hana til saka fyrir stríðsglæpi.
Hún var færð fyrir rétt í Düsseldorf þar sem Majdanek-réttarhöldin fóru fram frá 1975 til 1981. Vitnisburður eftirlifenda úr fangabúðunum dróg upp skelfilega mynd af því sem hún hafði gert þar.
Hún var sakfelld fyrir aðild að morðum á minnst 1.181 manneskjum og var hún dæmd í ævilangt fangelsi.
Síðustu árin
Vegna heilsufars hennar, báðir fæturnir höfðu verið teknir af henni vegna sykursýki, var hún náðuð 1996. Hún lést þremur árum síðar, 79 ára að aldri.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗