Notaði ljósabekki frá unglingsaldri – Lést nýlega af völdum húðkrabbameins þrítug að aldri
Pressan
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 21:30
Chelsea stundaði ljósabekki af kappi strax á unglingsaldri.
Chelsea Tantum byrjaði að nota ljósabekki þegar hún var 15 ára og notaði þá reglulega árum saman. Hún lést nýlega, aðeins þrítug að aldri, af völdum húðkrabbameins. Hún var mjög opinská um veikindi sín og ljósabekkjanotkun og reyndi hvað hún gat að vekja athygli fólks á hættunni sem fylgir því að nota ljósabekki.
LadBible segir að hún hafi greinst með langt gengið sortuæxli þegar hún var 28 ára og var það afleiðing áralangrar ljósabekkjanotkunar.
Í kjölfar greiningarinnar vann Chelsea ötullega að því að vara fólk við hættunni af ljósabekkjanotkun og hvatti fólk til að láta lækna skoða húðina.
„Ef það að deila sögu minni hjálpar fær bara eina manneskju til að láta skoða fæðingarblett fyrr, að þekkja hættumerkin, hætta að nota ljósabekki eða skilja hversu hættuleg sortuæxli eru, þá er það þess virði,“ skrifaði hún á Just Giving.
Hún hafði áður skýrt frá því að hún hefði byrjað að nota ljósabekki þegar hún var 15 ára og hafi keppt við vinkonur sínar um hver gæti náð mesta litnum. Þetta hafi þær gert þrátt fyrir að vera ekki nógu gamlar til að nota ljósabekki.
Hún hélt áfram að nota ljósabekki fram á þrítugsaldurinn, allt þar til hún greindist með krabbamein 28 ára. Þá hafði krabbameinið breiðst út til brjóstanna, rifbeinanna, lærleggjanna, lungnanna, lifrarinnar, mjaðmagrindarinnar og hryggjarins.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗