Í heljargreipum á Gasa og á Íslandi

Konan flúði Gasa en þar hefur geisað stríð síðan 2023 í kjölfar þess að Hamas-liðar réðust á íbúa Ísraels og myrtu, limlestu og nauðguðu á annað þúsund manns. Hörmungarnar eru ólýsanlegar.

Palestínskur fjölskyldufaðir hélt eiginkonu sinni og fimm börnum í heljargreipum ofbeldis og ótta eftir að fjölskyldan sameinaðist á Íslandi árið 2024. Hann hótaði konunni lífláti ef hún heilsaði karlmönnum, beitti börnin ofbeldi og sendi ættingjum erlendis myndir af dóttur sinni án höfuðslæðu með niðrandi ummælum um hana og móður hennar. Við skýringar á háttsemi sinni vísaði hann meðal annars til menningar og reglna um hegðun giftra kvenna. Dómurinn yfir honum varpar þannig ljósi á gróft heimilisofbeldi sem ber jafnframt skýr einkenni heiðursofbeldis, þ.e. ógnarstjórn þar sem réttlæting var sótt í menningarlegar kröfur um undirgefni kvenna og náði út fyrir heimilið og jafnvel landsteinana.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅