Íslendingarnir enduðu tímabilið vel í Noregi
Hinrik Harðarson skoraði fyrra mark Egersund eftir stoðsendingu Þorláks Breka Baxter í 2:0-sigri liðsins gegn lokaumferð norsku B-deildarinnar í fótbolta í dag.
Íslendingarnir léku báðir fyrstu 65. mínútur leiksins en mark Hinriks kom á 38. mínútu. Egersund endar í 8. sæti deildarinnar og náði ekki umspilssæti.
Skoraði og lagði upp
Davíð Snær Jóhannsson sem leikur með Bryne í sömu deild á láni frá Aaelsund er á leið í umspil eftir 3:1-sigur á Kongsvinger í dag.
Davíð Snær skoraði annað mark liðsins eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik og lagði upp þriðja markið rúmlega tuttugu mínútum síðar. Hann var síðan kallaður af velli í uppbótartíma.
Bryne endar í 6. sæti deildarinnar og mætir Odd, fyrrverandi liði Hinriks, í umspili um að komast í efstu deild. Sigurvegarinn úr einvíginu mætir Stabæk í undanúrslitum en lið Kongsvinger sem endaði í 3. sæti fer beint í úrslitaleikinn.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
