Íslendingarnir enduðu tímabilið vel í Noregi

Hinrik Harðarson skoraði í lokaumferðinni í dag.

Hinrik Harðarson skoraði í lokaumferðinni í dag. Ljósmynd/Egersund

Hinrik Harðarson skoraði fyrra mark Egersund eftir stoðsendingu Þorláks Breka Baxter í 2:0-sigri liðsins gegn lokaumferð norsku B-deildarinnar í fótbolta í dag.

Íslendingarnir léku báðir fyrstu 65. mínútur leiksins en mark Hinriks kom á 38. mínútu. Egersund endar í 8. sæti deildarinnar og náði ekki umspilssæti.

Skoraði og lagði upp

Davíð Snær Jóhannsson sem leikur með Bryne í sömu deild á láni frá Aaelsund er á leið í umspil eftir 3:1-sigur á Kongsvinger í dag. 

Davíð Snær skoraði annað mark liðsins eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik og lagði upp þriðja markið rúmlega tuttugu mínútum síðar. Hann var síðan kallaður af velli í uppbótartíma.

Bryne endar í 6. sæti deildarinnar og mætir Odd, fyrrverandi liði Hinriks, í umspili um að komast í efstu deild. Sigurvegarinn úr einvíginu mætir Stabæk í undanúrslitum en lið Kongsvinger sem endaði í 3. sæti fer beint í úrslitaleikinn. 

Davíð Snær Jóhannsson og liðsfélagar hans í Bryne eru á leiðinni í umspil. Ljósmynd/Bryne

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅