„Ég er svo danskur“
Maðurinn á bak við Epal, eina flottustu hönnunarverslun landsins, bauð blaðamanni inn á skrifstofu sína í Skeifunni í vikunni til að spjalla um hönnun. Eyjólfur Pálsson er mörgum kunnur, enda hefur hann staðið vaktina í Epal í rúma hálfa öld. Eyjólfur varð áttræður í sumar en mætir á hverjum degi til vinnu, eftir sundsprett í Laugardalslauginni. Hann segist þó vera farinn að minnka við sig, enda er fyrirtækið í góðum höndum sonar hans og annarra góðra starfsmanna. Eyjólfur segist afar stoltur og glaður að hljóta heiðursverðlaun fyrir lífsstarfið sem hefur snúist um hönnun allt frá því að hann hélt utan til Danmerkur um tvítugt.
Epal byrjaði smátt
Árið 1975 stofnaði Eyjólfur Epal sem var fyrst til húsa í litlum skúr en átti eftir að stækka til muna!
„Þetta byrjaði þannig að ég hafði kynnst textílfyrirtækinu Kvadrat í Danmörku og áður en ég fór heim gáfu þeir mér sett af öllum prufum í tösku. Ég fór að sýna mönnum þetta hér heima,“ segir Eyjólfur sem gekk á milli arkitekta með efnin í tösku til að kynna fyrir þeim nýja möguleika á húsgagnamarkaði.
Eftir að Eyjólfur hætti að vinna hjá Gunnari hóf hann störf hjá Hrjóbjarti Hrjóbartssyni og Geirharði Þorsteinssyni.
„Mig fór svo að vanta hluti sem ég hafði notað í Danmörku og fór að spyrja ýmsa kaupmenn hvort þeir gætu reddað mér hlutunum, en ekki nokkur maður vildi gera neitt fyrir mig. Þá sá ég að ég yrði bara að gera þetta sjálfur og hugmyndin að Epal kviknaði,“ segir hann.
„Ég fór þá að fá stórar pantanir af gluggatjaldaefnum fyrst og svo húsgögnum. Ég opnaði þá búð við Hrísateig 47 sem var nánast eins og bílskúr,“ segir Eyjólfur, en verslunin fékk nafnið Epal, E fyrir Eyjólf og pal fyrir Pálsson.
Búðin stækkaði fljótt og flutti í Síðumúla 20 og síðar í Faxafen, áður en Eyjólfur keypti núverandi húsnæði í Skeifunni. Flutti hann húsgögn inn frá Danmörku sem hann seldi í Epal og gerir enn, þó að vöruúrvalið hafi aukist til muna og vörur séu nú frá fleiri löndum.
Íslendingar tóku vel í þessi vönduðu húsgögn, þó að einhverjum þætti þau dýr.
„Prinsippið í upphafi var að við mættum ekki selja neinn hlut dýrari en hann kostaði í því landi sem hann var framleiddur og seldur í. Við höfum haldið í það prinsipp og erum með góða samninga við flutningafyrirtæki, enda eru að koma hér tveir til þrír gámar á viku fullir af vörum.“
Augnablik fyrir Ingibjörgu
Eyjólfur hefur í gegnum árin heimsótt íslenska spákonu sem notar indverska stjörnuspeki í spám sínum.
„Hún hefur talað við mig og leiðbeint mér fjórum sinnum á ári. Hún sagði á sínum tíma: „Eyjólfur, það á að merja þig og kremja en ekki gera út af við þig. Þú færð að njóta þess seinna,““ segir hann.
„Það er með ólíkindum hvað hún spáir rétt. Oft spáir hún fyrir um næstu fjóra mánuði og það stenst allt nokkurn veginn.“
Eyjólfur hafði verið einhleypur í fimm ár árið 2013 þegar hann fór á blint stefnumót. Spákonan hafði spáð að hann myndi hitta flotta konu þetta sumar og sendi hann niður í Hljómskálagarð, sagði honum að setjast þar á bekk, 3. júlí klukkan þrjú, og að hann myndi þá hitta framtíðarkonu sína. Eyjólfur dreif sig niður í Hljómskálagarð að hitta þessa huldukonu. Hún reyndist heita Ingibjörg Þóra Gunnarsdóttir og eru þau enn saman í dag.
En á leiðinni á stefnumótið gekk hann inn í hóp af trúðum sem voru þar á gangstígnum og fyrir tilviljun var þar ljósmyndari á ferð sem smellti mynd af Eyjólfi á meðal trúða, án hans vitundar.
„Ég er alltaf snemma á ferð og sá strax tvær konur á gangi og hugsaði, guð minn góður, tekur hún vinkonu sína með? En þær gengu fram hjá og ég gekk áfram og lenti inni í þessum trúðahópi. Ég vissi ekkert að það hefði verið tekin mynd en það er ekki fyrr en um haustið að ég fer á sýningu blaðaljósmyndara með Ingibjörgu að hún segir mér að það sé mynd af mér þarna. Þá fattaði ég að hún hefði verið tekin augnabliki fyrir Ingibjörgu,“ segir Eyjólfur sem keypti síðan réttinn að ljósmyndinni.
Heillaður af danskri hönnun
Í Epal er mikil áhersla lögð á danska hönnun, þó að Eyjólfur geri íslenskri hönnun einnig hátt undir höfði.
Spurður um uppáhalds danskan hönnuð segir hann:
„Það er svo erfitt að gera upp á milli barnanna sinna. Það er næstum því ómögulegt,“ segir hann, en dönsk hönnun stendur hjarta hans næst eftir árin í Danmörku.
„Ég heillaðist af danskri hönnun og kynntist mörgum af þessum eldri hönnuðum. Á öllum sýningum skoða ég alltaf danska hönnun. Í Bo Bedre var eitt sinn skrifað að Epal væri sú verslun í heiminum sem hefði flest dönsk hönnunarmerki, fyrir utan kannski Illums Bolighus,“ segir Eyjólfur.
„Ég er svo danskur,“ segir hann og brosir.
Eyjólfur hefur hlotið ýmsar viðurkenningar í gegnum tíðina, meðal annars Möbelprisen árið 2001, æðstu verðlaun Dana í húsgagnaiðnaði, afhent af Friðriki krónprinsi.
Hvað stendur upp úr þegar horft er yfir ævistarfið?
„Það hefur verið tekið eftir því sem ég er að gera og ég er mjög stoltur af því. Ég er stoltastur af því hvað hönnun er miklu sýnilegri í dag heldur en hún var, og ég hef hjálpað til við það,“ segir hann að lokum.
Ítarlegt viðtal er við Eyjólf í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/3/1690358.jpg)
