Viðurkennir framhjáhald með kínverskum njósnara
Jensen Huang, forstjóri Nvidia, hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til fjörutíu ára með kínverskum njósnara sem ráðinn var af kínversku leyniþjónustunni til þess að afla upplýsinga um Huang og fyrirtæki hans.
Huang greinir frá þessu í tölvupósti sem hann sendi starfsmönnum Nvidia sem fjölmiðillinn Axios hefur undir höndum.
Njósnarinn sem Huang átti í ástarsambandi við heitir Alice Huang og hefur gegnt háttsettri stöðu hjá tæknifyrirtækinu Megaspeed, sem hefur höfuðstöðvar í Singapúr og rekur gagnaver í Asíu.
Telja þjóðaröryggi ekki ógnað
Bandarísk yfirvöld hafa rannsakað hvort Megaspeed hafi aðstoðað kínversk fyrirtæki við að komast yfir háþróaðar örflögur Nvidia í trássi við bandarískar útflutningstakmarkanir.
Stjórn Nvidia hefur tilkynnt að sjálfstæð rannsókn á málinu sé hafin. Stjórnin segist ekki hafa trú á því að þjóðaröryggi Bandaríkjanna eða viðskiptaleyndarmálum Nvidia sé ógnað vegna málsins.
Í tölvupóstinu segist Huang hafa brugðist því trausti sem starfsmenn, stjórnarmenn og hluthafar Nvidia hafa sýnt honum.
Nvidia er eitt verðmætasta fyrirtæki heims og gegnir lykilhlutverki í þróun gervigreindar. Örflögur fyrirtækisins eru eftirsóttar um allan heim og hafa bandarísk stjórnvöld sett hömlur á útflutning þeirra fullkomnustu til Kína.
Huang hefur í gegnum tíðina beitt sér fyrir því að slakað verði á takmörkunum á sölu gervigreindarörflaga til Kína.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗