Sjálf-yfirlýstur „galdrakarl“ dæmdur í ævilangt fangelsi

Í júlí 2020 hvarf Leila Cavett, móðir búsett í Flórída, og hefur ekki fundist. Hún var 21 árs þegar hún hvarf. Nýlega var Shannon Ryan, sem segist vera „galdrakarl“ dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að hafa myrt hana.

People skýrir frá þessu og segir að Ryan eigi ekki möguleika á að fá reynslulausn og mun hann því sitja í fangelsi þar til yfir lýkur.

Þegar dómurinn var kveðinn upp báðu ættingjar Cavett hann um að segja þeim hvað kom fyrir hana en þeir vonuðust til að geta loksins fengið lík hennar svo hægt sé að jarðsetja hana á viðeigandi hátt.

Sonur Cavett, Camdyn, var einnig viðstaddur dómsuppkvaðninguna. Hann var bara tveggja ára þegar hann fannst einn á gangi í Miramar í Flórída skömmu eftir að móðir hans hvarf.

Shannon Ryan er sjálfskipaður galdrakarl.

Ryan, sem er 44 ára, vildi ekki tjá sig neitt áður en dómarinn kvað upp dóminn yfir honum. Hann hefur í hyggju að áfrýja dómnum.

Cavett var á ferðalagi í Flórída þegar hún hvarf en hún bjó í Georgíu. Hún sást síðast 25. júlí 2020. Sonur hennar fannst einn á gangi daginn eftir. Hvít pallbifreið hennar fannst síðar á bifreiðastæði við verslun Walmart nærri mörkum Miramar og Hollywood í Flórída.

Þar sem ekkert lík fannst urðu saksóknarar að reiða sig á óbein sönnunargögn og upptökur úr eftirlitsmyndavélum þegar þeir fluttu málið fyrir dómi.

Meðal þess sem saksóknarar lögðu fram fyrir dómi voru upptökur sem sýna Ryan með stóran ruslapoka sem hann setti í ruslagám við bensínstöð nærri staðnum þar sem Cavett sást síðast. Þeir bentu einnig á að Ryan hefði keypt ruslapoka og lyktareyði fyrir teppi á svipuðum tíma og Cavett hvarf.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅