Haukar í kjörstöðu eftir stórsigur
Haukar unnu stórsigur 42:24 á RK Levalea 2010 Nikšić frá Svartfjallalandi í þriðju umferð Evrópubikars kvenna á Ásvöllum í kvöld og eru í frábærri stöðu fyrir síðari leik liðanna annað kvöld.
Haukar voru með frumkvæðið í leiknum allt frá upphafi og komust sex mörkum yfir í fyrri hálfleik og voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 19:14.
Gestirnir áttu aldrei möguleika í síðari hálfleik og skoruðu aðeins tíu mörk í hálfleiknum gegn tuttugu og þremur mörkum Hafnfirðinga.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði tíu mörk fyrir Hauka og þær Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Sonja Lind Sigursteinsdóttir gerðu báðar níu.
Anna Hrafnhildur Þorleifsdóttir varði níu skot í marki Hauka og Sara Sif Helgadóttir sex.
Liðin mætast öðru sinni á Ásvöllum annað kvöld en sá leikur er skráður heimaleikur svartfellska liðsins.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗