Skiptar skoðanir meðal sérfræðinga um Hákon konung – „Ég hef áhyggjur af þessu“

Pressan

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 20:00

Hákon VIII Noregskonungur.

Það eru liðnir rúmir tveir mánuðir síðan Haraldur Noregskonungur lést og Hákon sonur hans tók við krúnunni. Hinn nýi konungur hefur nú þegar skapað sér ákveðið orðspor meðal þjóðarinnar og margir sérfræðingar í málefnum norsku hirðarinnar telja að því miður sé þetta orðspor á rökum reist.

Sérfræðingar ræddu þetta nýlega í hlaðvarpinu Blått blod hjá Nettavisen en hlaðvarpið beinir sjónum sínum að konungsfjölskyldunni og hirðinni. Í þættinum var meðal annars rætt um hvernig Hákon lítur á konungsríkið sitt og hvernig þetta blasir við almenningi.

Eftir aðeins rúma tvo mánuði sem konungur hefur Hákon verið kallaður allt frá „ráðgjafarkonungi“ til „níu til fjögur konungs“ og „bæjarstjóra í litlu sveitarfélagi“.

Sérfræðingarnir töldu að þessar lýsingar séu ansi nærri sannleikanum.

„Fólki þarf að líka við hann. Ég held að ef þessi ráðgjafatitill tollir við hann, þá muni fólk aldrei kynnast honum almennilega,“ sagði Per Gunnar Sværen, sérfræðingur Nettavisen í málefnum konungsfjölskyldunnar.

Sérfræðingarnir sögðu að ef Hákon vill verða elskaður af þjóðinni eins og faðir hans var, þá verði hann að leggja formlegheitin aðeins til hliðar og sýna persónuleika sinn.

Þeir bentu einnig á að það gangi ekki að líta á konungsembættið sem vinnu sem þarf bara að sinna og maður geti tekið sér frí frá.

Þeir bentu sérstaklega á hvernig konungurinn sjálfur ræddi um hlutverk sitt þegar hann ávarpaði Stórþingið í fyrsta sinn. Þá lýsti hann sjálfum sér sem „millistjórnanda“.

„Þetta er ekki bara, bara að verða konungur á einni nóttu. Það er gott að búa yfir 35 ára reynslu sem millistjórnandi í meðalstóru opinberu fyrirtæki,“ sagði nýbakaði konungurinn þá og vöktu orð hans mikla kátínu meðal þingmanna.

Sérfræðingarnir voru ekki alveg sammála um hvort það megi taka þetta grín konungsins þannig að hann líti á embættið sem vinnu sem hann getur lagt til hliðar til að geta sinnt fjölskyldunni betur frekar en mikla skyldu við Noreg.

„Ég hef áhyggjur af þessu,“ sagði Tove Taalesen, sérfræðingur og fyrrum starfsmaður hirðarinnar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅